Héðan og þaðan – 26. maí
Loksins er farið að hlýna og gróður að taka við sér. Vatnaveiðin er að komast í gang öllu seinna en vanalega og ekkert sérstakt sumarveður verður næstu daga þrátt fyrir að það sé nú að skána.
Loksins er farið að hlýna og gróður að taka við sér. Vatnaveiðin er að komast í gang öllu seinna en vanalega og ekkert sérstakt sumarveður verður næstu daga þrátt fyrir að það sé nú að skána.
Það er búið að vera fín veiði í Elliðavatni síðustu daga. Flugan er komin á kreik og fiskur hefur verið að sýna sig mikið. Oft getur þó reynst erfitt að finna réttu fluguna en þegar menn hitta á réttu fluguna er gaman.
Það hefur eflaust ekki farið framhjá nokkrum veiðimanni að sumarið hefur látið bíða eftir sér og fyrstu raunvörulegu merkin um sumarið sé að koma um þessar mundir.
Margir veiðimenn hafa lagt leið sína í Þingvallavatn til að egna fyrir urriðann enda byrjaði sannkallað urriðaævintýri þar strax 20. apríl í fyrra. Þeir sem hafa staðið vaktina hafa fengið lítið sem ekkert eða hafa a.m.k. þurft að hafa gríðarlega mikið fyrir hverjum fiski. Þó hafa margir fallegir urriðar komið á land.
Sauðlauksdalsvatn er eitt af þeim veiðivötnum sem geyma fallega fiska. Vatnið er staðsett rétt hjá Patreksfirði og því í raun utan alfaraleiðar. Þeir sem fara í vatnið uppskera yfirleitt nokkuð vel. Í vatninu má finna mjög væna staðbundna urriða, sjóbleikjur og staðbundnar auk þess sem sjóbirtingu á greiða leið upp í vatn. Einkennandi fyrir vatnið er að þar eru hvítar strendur líkt og maður sé staddur erlendis.
Sumarbyrjunin hefur leikið okkur veiðimenn grátt enda búið að vera mikill kuldi meira og minn það sem af er apríl. Þrátt fyrir það hafa nokkrir veiðimenn ekki geta beðið af spenningi og kíkt í vötnin.
Nú er veturinn á enda og sumardagurinn fyrsti að renna upp. Fyrir veiðimenn er það mikið ánægjuefni enda opnar Elliðavatnið fyrir veiði þá og það eru margir sem nota þann dag til að hefja veiðitímabilið. Fjöldi veiðimanna sækir vatnið á opnunardeginum til að veiða og hitta aðra veiðimenn. Í fyrra var 7°hiti um kl. 7 að morgni, en hætt er við að það verði eitthvað kaldara í fyrramálið enda spáir um 0-1° fyrir hádegi.
Á morgun, 20. apríl, verður opnað fyrir veiðimenn í Þingvallavatni, fyrir landi þjóðgarðsins. Það var mikið ævintýri á sama tíma fyrir ári síðan en þá komu nokkrir stórurriðaðar á land. Nú er hætt við því að það verði erfiðara að athafna sig enda ennþá mikill ís í þjóðgarðslandinu og má segja að það sé ís við landið allt frá Vatnsvík að Leirutá í það minnsta.
Kleifarvatn á Reykjanesi opanði 15. apríl síðastliðinn. Þrátt fyrir að veðrið hafi ekki verið upp á marga fiska síðustu daga hafa veiðimenn orðið varir við fiska, sett í, slitið úr og landað allt að 5 punda urriða. Vatnið er að mestu orðið íslaust þannig að það er allt að komast í gang!
Síðasta föstudagskvöld hélt Þorsteinn Stefánsson, veiðimaður, flotta kynningu hjá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur, á því hvernig maður á að bera sig að við veiðar á urriða í Þingvallavatni. Hér kemur kynningin frá honum í heild sinni þar sem stiklað er á ýmsum málum, eins og veiðistöðum, veiðibúnaði og öðru.
Á morgun 15. apríl hefst veiði í Kleifarvatni á Reykjanesi. Vatnið hefur ekki verið mikið stundað síðustu tvö ár en veiðimenn hafa verið að gera ágætis veiði þar þrátt fyrir það. Vonandi er stofninn að eflast í vatninu og verður spennandi að fylgjast með veiðinni þar í sumar.