Á morgun 15. apríl hefst veiði í Kleifarvatni á Reykjanesi. Vatnið hefur ekki verið mikið stundað síðustu tvö ár en veiðimenn hafa verið að gera ágætis veiði þar þrátt fyrir það. Vonandi er stofninn að eflast í vatninu og verður spennandi að fylgjast með veiðinni þar í sumar.

Síðustu fregnir herma að vatnið hafi verið nánast alveg ísilagt fyrir viku síðan, en eflaust eru einhver svæði orðin klár fyrir veiðimenn.  Við fáum vonandi fréttir af stöðu mála á morgun þegar vatnið opnar formlega.

 

{galbum 1,5950943510169012145}

 

Með veiðikveðju,

Veiðikortið

0 Comments

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Fyrri frétt
Urriðaveiði í þjóðgarðinum – kynning
Næsta frétt
Ice cold formal opening!