Staðsetning:
Hnit: 64° 54.699'N, 22° 52.640'W

Daglegur veiðitími
Heimilt er að veiða frá kl. 7:00 til 24:00.

Veiðitímabil
Hefst þegar ýsa leysir og lýkur 30. september.

Baulárvallarvatn - Vesturland

Baulárvallarvatn er á Snæfellsnesi.

Leiðarlýsing og fjarlægð frá Reykjavík og næsta bæjarfélagi

Vatnið er um 160 km. frá Reykjavík, um 15 km. í suður frá bæði Grundarfirði og Stykkishólmi, á leið frá Vegamótum í norður.  Nýja vatnaleiðin á Snæfellsnesi gerir það að verkum, að hægt er að aka alveg upp að vatninu.

Upplýsingar um vatnið

Vatnið er um 1,6 km2 að stærð og 47 metra djúpt, þar sem það er dýpst.  Vatnið er í um 193 m. yfir sjávarmáli.  Þangað rennur Vatnaá og úr því rennur Baulá, sem síðar sameinast Straumfjarðará, sem er fræg fyrir góða laxveiði.

Dagsleyfi
Dagsleyfi

Hér getur þú keypt dagsleyfi í Baulárvallavatn

Kaupa

Veiðisvæðið

Veiðisvæðið, sem Veiðikortið gildir fyrir, er frá norðurbakka Vatnsár að útfalli Straumfjarðarár

Gisting

Tjalda má endurgjaldslaust við vatnið, en hvorki er þar um skipulagt tjaldstæði né hreinlætis­aðstöðu að ræða..

Veiði

Urriðaveiði er góð í vatninu.  Meðalþyngd fiska er 2-3 pund, en algengt er, að þar veiðist stærri fiskar, 5-6 pund, einkum í ljósaskiptunum.

Agn

Leyfilegt agn er fluga, maðkur og spónn. Fiskur getur legið djúpt og þarf þá að sökkva agninu. Spónn og maðkur gefa að jafnaði ágæta veiði. Í ljósaskiptunum ferðast urriðinn inn á grunnið við landið og þá er gott að nota flugu.

Besti veiðitíminn

Góð veiði er allt sumarið. Yfirleitt er best að veiða í ljósaskiptunum.

Annað

Landeigandi ber enga ábyrgð á tjóni er korthafar Veiðikortsins kunna að verða fyrir, eða öðru sem upp kann að koma í tenglsum við veru veiðimanna á viðkomandi veiðisvæði.

Reglur

Veiðimenn eru beðnir um að skilja ekki eftir sig rusl og ganga vel um svæðið. Korthafar þurfa að hafa Veiðikortið og persónuskilríki við höndina þegar veiðivörður vitjar veiðimanna. Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa.