Staðsetning:
Hnit: 63° 55.557'N, 21° 59.574'W

Daglegur veiðitími
Heimilt að veiða allan sólarhringinn

Veiðitímabil
Hefst 15. apríl og lýkur 30. september.

Kleifarvatn á Reykjanesi - Suðurland

Kleifarvatn er á Reykjanesskaga, staðsett á milli Sveifluhálsar og Vatnshlíðar.

Leiðarlýsing og fjarlægð frá Reykjavík og næsta bæjarfélagi

Fjarlægð er um 34 km. frá Reykjavík.  Auðvelt er að komast að vatninu, en aka þarf Krísuvíkuleið og liggur vatnið meðfram þjóðveginum.

Upplýsingar um vatnið

Kleifarvatn er eitt af stærstu vötnum landsins, um 8 km2. að stærð og 136 m. yfir sjávarmáli.  Mesta dýpi í vatninu er um 90 m. á móts við Syðri Stapa.  Meðaldýpi í vatninu er um 29 m. Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar fer fyrir veiðiréttinum í vatninu.  Kleifarvatn er frægt fyrir stórfiska og mælingar sýna mikið af fiski í vatninu, einnig hafa kafarar séð mikið af vænum fiski þar. Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar hefur hafið ræktunarátak í vatninu og sumarið 2006  var sleppt um 10.000 ársgömlum urriðaseiðum í vatnið. Sleppingum verður haldið áfram næstu ár auk þess sem slóðar í kringum vatnið hafa verið lagfærðir.
Leiðarlýsing og fjarlægð frá Rvk. og næsta bæjarfélagi.
Dagsleyfi
Dagsleyfi

Hér getur þú keypt dagsleyfi í Kleifarvatn

Kaupa

Veiðisvæðið

Veiði er heimil í öllu vatninu.

Gisting

Engin gistiaðstaða er við vatnið.

Veiði

Í vatninu er bæði bleikja og urriði.

Agn

Fluga, maðkur og spónn.

Besti veiðitíminn

Veiði er nokkuð jöfn yfir daginn.

Reglur

Handhöfum Veiðikortsins ber að vera með kortið og skilríki á sér og tilbúnir að sýna það veiðiverði þegar hann vitjar veiðimanna.  Það er stranglega bannað að skilja eftir sig rusl og aka utan vega.  Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa.  Óskað er eftir að því að menn sendi upplýsingar um afla með tölvupósti á netfangið veidikortid@veidikortid.is.  Bátaumferð á vatninu er bönnuð.

Veiðivörður

Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar fer með veiðieftirlit.