Staðsetning:
Hnit: 65° 14.285'N, 21° 22.198'W

Daglegur veiðitími
Leyfilegt er að veiða allan sólarhringinn.

Veiðitímabil
Heimilt að veiða allt árið um kring.

Hólmavatn í Dölum - Vesturland

Hólmavatn er á Hólmavatnsheiði í Dölum.

Leiðarlýsing og fjarlægð frá Reykjavík og næsta bæjarfélagi

Vatnið er um 180 km frá Reykjavík, eða um 30 km frá Búðardal.  Ekið er um Bröttubrekku í áttina að Búðardal, ef komið er að sunnan. Rétt áður en komið er að Laxá í Dölum er beygt upp Laxárdal á þjóðvegi 59 og ekið áleiðis 24,8 km að bænum Sólheimum þar sem veiðimenn skrá sig.  Þaðan er um 5 km vegur upp á heiði, en hann er ekki greiðfær fólksbílum, þó að hægt sé að aka þar á vel útbúnum og háum fjórhjóladrifsbílum.  Jepplingar og jeppar hentar þar að sjálfsögðu best.

Upplýsingar um vatnið

Hólmavatn er um 1 km2 að stærð og í um 190 m hæð yfir sjávarmáli.

Dagsleyfi
Dagsleyfi

Hér getur þú keypt stök leyfi í ýmis vötn

Kaupa

Veiðisvæðið

Veiða má í öllu vatninu fyrir landi Sólheima.
Veiða má fyrir landi Sólheima, eða frá útfalli austur fyrir vatnið og norður að þeim punkti þar sem Reiðgötuvatn liggur að vatninu – sjá bláa línu á korti. Veiði í Gullhamarsvatni og Selvötnum fylgja með. Gullhamarsvatn er fyrir norðan Hólmavatn og fyrir austan Gullhamar sem er við vatnið. Selvötnin eru fyrir austan Hólmavatn og austan Selhólana en Sellækurinn rennur á milli Hólmavatns og Selvatnna. Þessi vötn eru í stuttu göngufæri frá Hólmavatni.

 

 

Kort

 

Gisting

Hægt er að tjalda endurgjaldslaust við vatnið á eigin ábyrgð og í samráði við landeiganda, end þar er þó enga hreinlætisaðstöðu að finna.

Veiði

Góð veiði er í vatninu. Bæði má finna urriða og bleikju í vatninu, þó að bleikjan sé á undanhaldi.  Montana Green er fluga sem reynst hefur sérstaklega vel í vatninu auk þess sem klassískar púpur gefa þar vel.
Áhugavert er fyrir barnafólk að kíkja í Selvötnin en þar er mikið af fiski þrátt fyrir að hann sé ekki endilega stór. Veiðimenn í ævintýraleit geta einnig kíkt í Gullhamarsvatn sem fylgir með .

Agn

Leyfilegt agn er fluga, maðkur og spúnn.  Stranglega bannað er að leggja net.

Besti veiðitíminn

Góð veiði er allt sumarið.

Reglur

Veiðimenn verða að skrá sig við komu á bænum Sólheimum áður en haldið er til veiða, en sýna þarf Veiðikortið og skilríki. Einnig fá veiðimenn veiðiskýrslu, sem þarf að skila útfylltri við lok veiða.
Aðeins er heimilt að koma til veiða á milli 7:00 og 22:00.
Öll umferð á mótorhjólum / fjórhjólum er bönnuð nema í samráði við veiðivörð. Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa.
Hundar eru aðeins leyfðir á svæðinu í samráði við veiðivörð.

Veiðivörður

Daði Einarsson á Sólheimum. S: 863-7702