Staðsetning:
Hnit: 65° 33.194257'N, 22° 6.390'W

Daglegur veiðitími
Heimilt er að veiða frá kl. 7:00 til 23:00.

Veiðitímabil
Hefst 15. maí og lýkur 15. september.

Berufjarðarvatn - Vesturland

Berufjarðarvatn er við Berufjörð í Reykhólahreppi, Austur-Barðastrandasýslu.

Leiðarlýsing og fjarlægð frá Reykjavík og næsta bæjarfélagi

Frá Reykjavík eru um 215 km að vatninu ef farið er um Hvalfjarðargöngin og tæpir 150 km frá Borgarnesi og Stykkishólmi. Vatnið liggur við Vestfjarðaveg og er í alfaraleið fyrir þá sem ætla að heimsækja suðurfirði Vestfjarða.

Upplýsingar um vatnið

Berufjarðarvatn er frekar lítið eða 0,15 km2 að flatarmáli, fremur aðgrunnt vestan megin en meira dýpi er að austan. Vatnið er 49 m yfir sjávarmáli og er mesta dýpi rúmlega 2 m. Vatnið er um 600 m að lengd og um 300 m þar sem það er breiðast. Hægt er að aka að vatninu norðaustan megin, beint niður frá Hótel Bjarkalundi.

Dagsleyfi
Dagsleyfi

Hér getur þú keypt dagsleyfi í Berufjarðarvatn

Kaupa

Veiðisvæðið

Veiði er heimil í öllu vatninu. Algengustu veiðistaðirnir eru á austurbakkanum þeim sem liggur næst veginum. Frá vesturbakkanum er frekar aðgrunnt en þó er veiðivon alls staðar í vatninu.

Gisting

Hótel Bjarkalundur er í um 400 m fjarlægð frá vatninu, en þar eru einnig tjaldstæði með rafmagni og sturtuaðstöðu. Símar 562-1900, info@hotelbjarkalundur.is.

Veiði

Mest er af urriða í vatninu en einnig er talsvert af bleikju. Mest veiðist af 1-3 punda fiski en stærsti fiskurinn sem menn vita um að veiðst hafi á stöng vigtaði 10 pund.

Agn

Allt löglegt agn: fluga, maðkur og spónn.

Besti veiðitíminn

Fiskur veiðist allt sumarið en fyrri hluti sumars er þó heldur meiri veiðivon. Veiði er í vatninu allan daginn, en morgunn og kvöld eru alltaf líklegustu tímarnir.

Reglur

Korthafar þurfa að skrá sig hjá veiðiverði á Hótel Bjarkalundi, þar sem kortanúmer og kennitala eru skráð niður. Veiðimenn eru beðnir um að skilja ekki eftir sig neinar leifar eða ummerki. Stranglega er bannað að aka utan vega. Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa.