Staðsetning:
Hnit: 64° 02.402N, 18° 52.727'W

Daglegur veiðitími
Heimilt er að veiða allan sólarhringinn

Veiðitímabil
Veiði er heimilt allt árið um kring.

Ófærur og Blautulón- Suðurland

 

Leiðarlýsing og fjarlægð frá Reykjavík og næsta bæjarfélagi

Lónin eru í um 220 km frá höfuðborgarsvæðinu. Farin er Fjallabaksleið nyrðri. Annars vegar eftir vegi F208 í gegnum Landmannalaugar eða þá í gegnum Skaftártungu.

Sé farið í gegnum Landamannalaugar er beygt af Fjallabaksleið F208 inn á Langasjósveg og eknir um 11 km þar til beygt er til hægri. Þaðan erum 2 km akstur að austara lóninu.

Einnig er hægt að leggja við Nyrðri-Ófæru og labba upp að vestari lóninu. Það er um 500 m ganga.

Upplýsingar um vatnið

Blautulón má finna á hálendinu í Skaftártungnaafrétti. Lónin eru tvö. Mest er af smábleikju í lóninu en þar má einnig veiða stærri ránbleikjur og stöku urriða.

Blautulón eru fjölskylduvænn veiðistaður þar sem mikið af fiski er í vatninu og flestir sem þar veiða fá fisk. Hér má veiða eins mikið og hver vill.

Við Blautulón ertu umvafinn eldfjallalandslagi, svörtum söndum og mosagrónum breiðum.

Dagsleyfi
Dagsleyfi

Hér getur þú keypt dagsleyfi í Blautulón

Kaupa

Veiðisvæðið

Leyfilegt er að veiða í báðum lónunum öllum og útfalli í Nyrðri-Ófæru, ekki í ánni sjálfri.

Gisting

Tjalda má endurgjaldslaust á svæðinu, en ganga skal vel um og hirða allt rusl eftir sig. Athuga skal að á svæðinu er ekki skipulagt tjaldstæði né hreinlætis aðstaða.

Hægt er að fá gistingu í fjallaskálanum Skælingum sem og Hálendistmiðstöðinni Hólaskjóli

Veiði

Mest er af bleikju á svæðinu. Meðalstærð er um  ½ -2 pund en einnig er eitthvað um urriða.

Agn

Leyfilegt agn er fluga, maðkur og spónn. Einnig er heimilt að leggja net.

Besti veiðitíminn

Best er að veiða fyrri hluta sumars og á haustin.

Reglur

Utanvega akstur er stranglega bannaður. Bannað er að veiða í Nyrðri- Ófæru, aðeins í útfalli

Bátanotkun er heimil sem og einnig eru hundar velkomnir.

Leyfilegt er að tjalda en ganga skal vel um svæðið og hirða skal allt rusl eftir sig

Handhöfum Veiðikortsins er heimilt að fara beint niður að vatni en hafa Veiðikortið sýnilegt í bílglugga til þæginda fyrir veiðivörð. Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa.

Annað

Leigutaki ber enga ábyrgð á tjóni er korthafar Veiðikortsins kunna að verða fyrir eða öðru sem upp kann að koma í tengslum við veru veiðimanna á viðkomandi svæði.

Veiðivörður

Hlynur Björn Pálmason, sími 824-1128