Þingvellir – fallegir urriðar!
Þingvellir – fallegur urriði sem tók Svartan Nobbler! – – Uppfærður pistill og fleiri myndir!
Sigurður Bogason fór ásamt félögum sínum á Þingvelli snemma í morgun. Það voru fá mættir en fjölmennt var orðið upp úr kl. 9.00.
Eftir um klukkutíma veiði fékk Sigurður glæsilegan urriða til að taka Svartan Nobbler. Viðureignin tók um 25 mínútur og reyndist fiskurinn vera um 11 pund.