SVFR, Veiðihornið og Veiðikortið efna til Veiðikeppninnar litlu um næstu helgi. Keppnin fer fram í þremur vötnum, í Elliðavatni, Þingvallavatni og Vífilsstaðavatni dagana 13. -15. júní. 

Keppt verður í tveggja manna liðum og ekki seinna vænna en að hringja í veiðifélagann og skrá sig til leiks! Hámarksliðafjöldi eru 10 lið. Allt er þetta til gamans gert en veittar verða viðurkenningar í fjölmörgum flokkum og auk heiðursins fær sigurliðið Varmá út af fyrir sig í einn dag að eigin vali. Veitt er á sex stangir í ánni og getur sigurliðið því boðið fjórum vinum með sér í skemmtilega veiði en sannkölluð tröll eru á sveimi í þessari nettu á.
 
Allir keppendur fá Veiðikortið sem veitir þeim aðgang að 36 vatnasvæðum vítt og breitt um landið í allt sumar. Einnig nokkur vel valin leynivopn frá Veiðihorninu til að freista fiskanna í vötnunum þremur. Keppnin hefst kl. 16 í Elliðaárdalnum við skrifstofu SVFR þar sem liðin fá afhent keppnisgögn og leikreglur. Að því búnu bruna veiðimenn í fyrsta vatnið. Veiðar af bát eru bannaðar.
 
Til að skrá þátttöku senda liðin tölvupóst á ari@svfr.is þar sem fram koma nöfn liðsmanna og heiti liðs.
 
Skipulag keppninnar er á þann veg að á föstudaginn er veitt í Elliðavatni, á laugardaginn í Þingvallavatni og á sunnudaginn í Vífilsstaðavatni. Til að tryggja sér sigur í keppninni þurfa veiðimenn að taka mynd af öllum veiddum fiskum ásamt málbandi sem staðfestir lengd þeirra en samanlagður fjöldi „veiddra sentimetra“ ræður úrslitum.
 
Liðin verða að nota Facebook eða Foursquare til að staðfesta að veitt sé í viðkomandi vatni á réttum tíma eða sanna það með öðrum óyggjandi hætti.
 
Veittar verða viðurkenningar fyrir stærsta fiskinn, minnsta fiskinn, flesta veidda fiska, girnilegasta nestið, bestu veiðimyndina og bestu veiðisöguna. Keppendur verða að skila veiðiskýrslu og myndum til skrifstofu SVFR eigi síðar en mánudaginn 16. júní.
 
Fjallað verður um keppnina í máli og myndum í næsta tölublaði Veiðimannsins sem nú er í vinnslu og kemur út í júlí.
 
SVFR, Veiðihornið og Veiðikortið hvetja veiðimenn til að taka þátt, reyna með sér og skemmta sér í góðum félagsskap. Veðurspáin er góð og fullt af fiski í vötnunum!

0 Comments

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Fyrri frétt
Sléttuhlíðarvatn og Hraunsfjörður
Næsta frétt
Bleikjan tekur vel í sumarblíðunni!