Það er fallegt í Fljótunum. 
Sléttuhlíðarvatn er rétt norðan við Hofsós, en þó er ekki nema um hálftíma keyrsla þangað frá Varmahlíð.  Ef menn eru á norðuleið þá hvetjum við fólk til að kíkja þangað en yfirleitt er mikið líf þar og gaman fyrir fjölskylduna að renna fyrir fiski þar.  Einnig má benda á að hægt er að leigja gistinu í húsi sem búið er að standsetja rétt við vatnið hjá Magnúsi á Hrauni.

Stjáni Ben var á ferðalagi um Fljótin og stoppaði í stutta stund í Sléttuhlíðarvatni og fékk hann og fjölskyldan þar 3 urriða á skömmum tíma.  Hér fyrir neðan má sjá myndir frá honum – einnig sendi Valdemar okkur myndir þaðan og má skoða þær hér auk þess sem alla þessar myndir má skoða í myndaalbúminu.  Við þökkum kærlega fyrir þessar myndir sem sanna það hann er byrjaður að taka fyrir norðan. 
Hér eru myndir frá Stjána Ben:
 
Mynd: Stjáni Ben – Sléttuhlíðarvatn maí 2009
 
Mynd: Stjáni Ben – Sléttuhlíðarvatn maí 2009
 
Mynd: Stjáni Ben – Sléttuhlíðarvatn maí 2009
 
Mynd: Stjáni Ben – Sléttuhlíðarvatn maí 2009
 
Mynd: Stjáni Ben – Sléttuhlíðarvatn maí 2009
 
Hér fyrir neðan má sjá myndir frá Valdemar:
 
Mynd: Valdemar – Sléttuhlíðarvatn maí 2009
 
Mynd: Valdemar – Sléttuhlíðarvatn maí 2009
 
Mynd: Valdemar – Sléttuhlíðarvatn maí 2009
 
Mynd: Valdemar – Sléttuhlíðarvatn maí 2009
 
 
 
 

0 Comments

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Fyrri frétt
Þingvellir – Bleikjuskot og urriðaveiði
Næsta frétt
Merkilegir og merktir fiskar! Skyldulesning!