Birkir Már Harðarson kíkti í Hraunsfjörðinn í gær. Það var stafalogn og fallegt veður. Fiskur var að vaka um nánast allt vatn.

Það var mikið af smárri bleikju inn í botni fjarðarins og þar fékk hann nokkrar. Síðan færði hann sig nær grjótgarðinum og fékk nokkrar þar.  Hann var aðallega að veiða þessa fiska á Langskegg og litla svarta toppflugu sem og marflóarlíkingu. Svo virðist sem bleikjan sé að bunkast inn með hækkandi hita enda draumatíminn í Hraunsfirði á næsta leiti.

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir frá Birki Má og við þökkum honum kærlega fyrir upplýsingarnar og myndirnar.

 

 

 

Með veiðikveðju,

Veiðikortið 

 

0 Comments

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Fyrri frétt
Þingvellir – skemmtileg helgi í bongó blíðu!
Næsta frétt
Very good fishing in Skagaheidi – Ölvesvatn #38