Bleikjuveiðin er komin í gang á Þingvöllum.  Eiður Valdemarsson hefur verið duglegur að skjótast í vötnin nálægt borginni og fór hann á Þingvelli í morgun til að reyna við bleikjuna. 

Það var mikið af bleikju á svæðinu og var hún í miklu tökustuði, en hann var að veiða í Vatnskoti.  Þeir voru þrír að veiða í þar, Siggi Valli sem fékk fallega bleikju, Jón endaði með 6 bleikjur og í eitt skiptið var hann með tvær á í einu og  Eiður sem landaði 7 bleikjum og fékk þær allar á PK Orm (rauðan með gulli), Svörtu og Rauðu perluna.  Þeir notuðu langan taum og tökuvara.  Þeir félagar voru ánægðir með afla dagsins enda gaman að vera við Þingvallavatn þegar bleikjan er í tökustuði.

Hér fyrir neðan koma nokkrar myndir frá Eiði sem teknar voru við Þingvallavatn í morgun.

 


Jón búinn að setja í bleikju!


Jón með fallega 2,5 punda bleikju.


Jón með fallega bleikju sem hann fékk í morgun.


Siggi Valli með eina góða bleikju!  


Eiður að slaka á eftir fjórðu bleikjuna!


Hér er afli dagsins kominn á land.


 

0 Comments

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Fyrri frétt
Opið bréf til Þingvallanefndar frá LS.
Næsta frétt
Héðan og þaðan – 23. maí