Michael Murphy er írskur veiðimaður sem er farinn að koma reglulega til Íslands þar sem hann sameinar áhugamálin sín, fjallgöngu og fluguveiðar. Í fyrra fór hann á Vestfirði og veiddi meðal annars í Syðridalsvatni en nú var ferðinni heitið á Snæfellsnes.
Marcin Kurleta hefur kíkt í Kleifarvatnið á Reykjanesi síðustu daga og veitt vel. Í fékk hann t.d. fallega 50 sm bleikju og brúnleita púpu en hann hefur fengið 17 bleikjur þar síðustu daga.
Við höfum heyrt í nokkrum veiðimönnum sem hafa kíkt í vötnin um helgina og allir á því að það sé mikið líf í vötnunum en að sjálfsögðu getur fiskurinn verið mistregur að taka eftir veðri, vindum og ætisframboði.
Þrátt fyrir að júní hafi verið ágætur og blautur, þá er eins og vötnin séu að detta aðeins seinna í ganga en vanalega. Fyrst núna eru vötn eins og þjóðgarðurinn á Þingvöllum að lifna við hvað bleikjuna varðar a.m.k. Frekar rólegt hefur verið í Elliðavatni og tala veiðimenn um að vötnin séu enn óvanalega köld miðað við að það sé farið að nálgast júlímánuð.
Even though June has been quite nice, with rain and good weather between storms, it looks like the lakes are a bit colder than in an average year. Therefore the char is a bit late and finally we are seeing more of the char now at lake Þingvallavatn and Ulftljotsvatn. Upcoming weeks are in a way high season in the lakes since there is more fish around looking for something delicious to eat closer to the waterbank.
Lárus Óskar og félagar fór í sína árlegu veiðiferð á Skagaheiði (Ölvesvatn) um síðustu helgi og fengu þeir frábær veður til útivistar og veiða.
Þeir veiddu vel að vanda en tala um að fiskurinn fari stækkandi. Þeir voru með mjög marga fiska sem voru 2-2,5 pund og einn sem var tæp 4 pund. Þeir voru að veiða bleikju og urriða í bland.
Það hafur verið fín veiði í Vestmannsvatni það sem af er sumri.
Sveinn Þór Arnarsson, fluguhnýtari með meiru, kíkti í vatnið í gær ásamt veiðifélaga sínum. Þar var mikið líf og þeir lönduðu 18 fiskum. Mest urriða einn einnig nokkrum væntum bleikjum. Fiskarnir tóku flestir flugu eftir Svein sjálfan sem heitir Naggur, en það er ólífurgræn og rauð púpa sem gefur vel bæði í urriða og bleikju. Bleikjan tók mjög grant og settu þeir í margar sem náðust ekki á land. Sveinn sagði að það hefði verið mjög góð taka meðan það var smá andvari, en um leið og það féll í dúnalogn snarhætti fiskur að taka en þess ber að geta að mikið flugnaklak var í gangi við vatnið í gær.
Svo virðist sem að kuðungableikjan sé loksins mætt í þjóðgarðinn og er hún vel væn. Wojciech Sasinowski var við veiðar í morgun og fékk hann 3 rígvænar kuðungableikjur.
Þegar sólin kom og fór að skína í morgun mætti kuðungableikjan til leiks. Þær voru mjög sýnilegar á milli 8 og 9 í morgun. Hann fékk 3 fallegar bleikjur sem voru á bilinu 3,5 – 4 pund.
Veiðikortið 2021 veitir nær ótakmarkaðan aðgang að rúmlega 36 vatnasvæðum vítt og breitt um landið. Kortið kostar aðeins 8900 krónur á fullu verði (Aðeins kr. 7.100.- fyrir vildarklúbb VODAFONE) og fylgir glæsileg handbók hverju seldu korti þar sem má finna leiðbeiningar og reglur. Veiðikortið verður sent í pósti til kaupanda og ætti að berast innan 3 virka daga. Kortið gildir fyrir einn fullorðin. Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd korthafa.
Kortið er ekki skráð á nafn þannig að auðvelt er að nota það í gjafir.
Til að kaupa kortið velurðu fjölda korta hér fyrir neðan og síðan velurðu "Greiða hjá Korta" og þá ferðu sjálfkrafa á öruggt vefsvæði hjá Kortaþjónustunni.
(Ef þú ert ekki með kreditkort er hægt að leggja inn á reikning 0130-26-806712 – kt. 671204-2120 kr. 7100.- fyrir hvert kort og senda kvittun og upplýsingar um nafn og heimilisfang á netfangið veidikortid@veidikortid.is ) Munið bara að merkja VODAFONE í athugasemdir.
Kortið verður sent í pósti næsta virka dag.
TILBOÐ FYRIR VILDARKLÚBB VODAFONE aðeins kr. 7.100.-
Tilkynning: 3.3.2021 – Verið er að uppfæra vefsöluna. Vonum að hún verði tilbúin aftur í næstu viku. Þangað til er að hægt að leggja inn á okkur beint sbr að ofan og senda okkur tölvupóst með nafni og heimilisfangi á veidikortid@veidikortid.is 0130-26-806712 – kt. 671204-2120 kr. 7.100.-
Frekar rólegt hefur verið að urriðamiðum í Þingvallavatni í landi þjóðgarðsins frá því opnað var fyrir veiði þann 20. apríl s.l. Veðrið hefur ekki verið upp á marga fiska og því frekar fáir við veiðar og fáir fiskar sem komu á land fyrstu dagana. Síðustu dagar hafa þó verið ágætir og hafa veiðimenn vera að slíta upp einn og einn fisk.