Urriðadans í Öxará 14. október kl. 14
Jóhannes Sturlaugsson hjá rannsóknafyrirtækinu Laxfiskum mun fræða gesti Þjóðgarðsins á Þingvöllum um urriðann í Þingvallavatni , lífshætti hans og almennan hag.

Hér er Jóhannes með einn höfðingjann í Öxará.
Jóhannes Sturlaugsson hjá rannsóknafyrirtækinu Laxfiskum mun fræða gesti Þjóðgarðsins á Þingvöllum um urriðann í Þingvallavatni , lífshætti hans og almennan hag.
Nú er haustið farið að gera vart við sig og vötnin farin að loka eitt af öðru. Í dag er til að mynda síðasti veiðidagurinn í Berufjarðarvatni, Elliðavatni, Frostastaðavatni, Vífilsstaðavatni og Þingvallavatni. Við hvetjum veiðimenn sem ætla sér að nýta síðustu veiðidagana að skoða vel töfluna með opnunar- og lokunartíma vatnanna á veidikortid.is/opnunartimi.
Veiðimenn geta nýtt helgina vel t.d. í Meðalfellsvatni og Hraunsfirði en ágætis veiði hefur verið þar síðustu daga.
Við viljum einni nota tækifærið og minna veiðimenn á að skrá afla frá í sumar hafi það gleymst en slóðina má finna hér:
Með veiðikveðju,
Veiðikortið
Kæru veiðimenn,
Ekki láta ykkur bregða þó þið verðið varir við bátaumferð, dróna og að hópur vísindamanna sé að störfum í þjóðgarðinum út næstu viku. Verið er að vinna við verkefni í neðanvatnsforleifarannsókn í Þingvallavatni.
Hér fyrir neðan er fréttin eins og hún kemur fram á heimasíðu Þingvallaþjóðgarðsins:
Fyrr í sumar var kynnt verkefni um neðanvatnsfornleifarannsókn í Þingvallavatni. Sú rannsókn er nú hafin og verður teymi erlendra neðansjávarfornleifafræðinga við störf í þjóðgarðinum út næstu viku. Munu þeir beita aðferðum fjarkönnunaraðferða eins og dróna, hliðarsónarskanna, myndmælingum og stýrðum köfunum. Búast má því við einhverri bátaumferð meðfram norðurstrandlengju Þingvallvatns og drónaflugi.
Landsig sigdalsins hefur verið um 4 metrar síðustu 1000 ár. Tilgangur verkefnisins er kanna fyrri notkun Þingvallvatns sem og fornleifar sem nú eru neðanvatns en stóðu áður á þurru landi.
Verkefnið er leitt af Dr. Kevin Martin. Frekari upplýsingar má fá með því að senda tölvupóst á torfi@thingvellir.is eða í síma 8480672.
Nú er einn besti tími vatnaveiðinnar að nálgast en hann er jafnan frá miðjum júní fram í ágúst. Þá er lífríkið komið á fullt og silungar synda nær landi í ætisleit.
Fín veiði hefur þó verið það sem af er sumri. Elliðavatn hefur verið mjög áberandi enda búið að vera með eindæmum góð veiði þar, jafnt á urriða og boltableikjum.Við höfum heyrt af góðri veiði í Hlíðarvatni í Hnappadal, Hreðavatni, Baulárvallarvatni og Meðalfellsvatni. Óvenju rólegt hefur verið í Þingvallavatni í bleikjuveiðinni en þó einn og einn að fá vænar bleikjur þar og enn eru menn að setja í urriða þar. Sama má segja um Úlfljótsvatn, en þar hafa einnig verið að veiðast vænar bleikjur.
Vötnin fyrir norðan hafa einnig verið að gefa góða veiði en við höfum haft fréttir af fínni veiði í Ljósavatni, Vestmannsvatni og líka Svínavatni.
Við hvetjum veiðimenn til að fylla út veiðiskráningarformið okkar á netinu, en það má finna á veidikortid.is/veidiskraning.
Góða skemmtun í vötnunum í sumar!
Með veiðikveðju,
Veiðikortið
Sumar er á næsta leiti. Margir veiðimenn byrja veiðitímabilið þegar sumardagurinn fyrsti gengur í garð, en þá hefst veiðitímabilið í Elliðavatnið ár hvert. Þingvallavatn opnar 20. apríl ár hvert og það vill svo skemmtilega til að það er einnig sumardagurinn fyrsti, þannig að bæði þessi vötn opna því fyrir veiði á morgun.
Elliðavatn:
Það hefur verið hlýtt síðustu daga og vatnið eru tilbúið. Veðurspáin er góð og hafa fiskar sést í vatninu.
Í Þingvallavatni hefur urriðaveiðin farið ágætlega af stað á þeim stöðum í vatninu sem hafa þegar hafið veiðar, þannig að veiðimenn ættu að geta farið með góðar væntingar austur í Þingvallasveit á morgun.
Við hvetjum veiðimenn til að senda okkur fréttir á morgun um ganga mála.
Athugið að gróður getur verið mjög viðkvæmur á vorin og því bera að gæta að viðkvæmum göngustígum.
Þeir sem eru með Rafræn Veiðikort – munið eftir að prenta út mynd af kortinu til að hafa í mælaborði birfreiðar til að létta lífið hjá veiðieftirlitinu. Hér fyrir neðan er mynd af kortinu sem rafrænir korthafar geta nálgast með því að fylgja QR kóða tölvupóstinum. Ef einhver finnur ekki þessa mynd af kortinu sínu má gjarnan hafa samband við okkur með t-pósti.
Með sumarkveðju,
Veiðikortið
Í morgun hófst veiði í Kleifarvatni á Reykjanesi. Það er fallegur dagur og eflaust margir sem ætla sér að kíkja í vatnið í dag enda veðrið fallegt. Í vatninu er bæði falleg bleikja og von á vænum urriðum. Þeir sem sigta á urriðann mæta gjarnan seinnipartinn eða snemma á morgnana.
Við minnum veiðimenn á að skrá afla í veiðibók, en hægt er að skrá afla á netinu með því að fara á https://veidikortid.is/veidiskraning/ og þar er hægt að senda inn myndir af fiskum með skráningu.
Fréttir og myndir frá opnunardeginum væru vel þegnar á netfangið veidikortid@veidikortid.is
Einnig minnum við á að veiði er hafin í Hraunsfirði og Vífilsstaðavatni en veiðimenn hafa verið að fá ágæta veiði þar síðustu daga þrátt fyrir að hafa farið seint af stað. Meðalfellsvatn opnar svo 19.4 og Þingvallavatn og Elliðavatn 20. apríl sem er jafnframt sumardagurinn fyrsti.
Þeir sem ekki eru komnir með Veiðikortið geta keypt kortið rafrænt og fengið það beint í símann.
Einnig er hægt að kaupa stakan dag í vatnið með því að smella hér.
Með veiðikveðju,
Veiðikortið.
Þrátt fyrir óvenju kalt vor virðast vera hlýindi í kortunum fyrir næstu helgi.
Við munum fylgjast vel með hvort að ísinn á Vífilsstaðavatni muni hopa í tíma þannig að veiðimenn geti opnað tímabilið formlega næsta laugardag sem er 1. apríl.
Það eru hverfandi líkur á að önnur vötn verði tilbúin en vorið er á næsta leiti og veiðimenn þurfa vonandi ekki að bíða lengi eftir að vatnveiðin fari í gang.
Með kveðju,
Veiðikortið
Við kynnum með stolti Veiðikortið 2023. Það er væntanlegt innan fárra daga úr prentun þannig að það fer í dreifingu fljótlega.
Hítarvatn í Borgarfirði er komið aftur í Veiðikortið eftir fjarveru frá 2018 og eflaust margir veiðimenn sem gleðjast yfir því enda Hítarvatn eitt af vinsælustu veiðivötnum landsins.
Veiðikortið hefur verið vinsæl jólagjöf síðustu árin enda höfum við kappkostað við að hvetja veiðimenn og fjölskyldur til að njóta íslensks sumars við falleg veiðivötn. Með Veiðikortið í vasanum geta veiðimenn veitt í 37 veiðivötnum vítt og breitt um landið fyrir aðeins kr. 8.900.-
Við látum ykkur vita um leið og kortið er tilbúið til afhendingar, en hægt er að panta það strax á netinu og fá það sent frítt heim um leið og það verður klárt.
Rafrænt kort í Apple Wallet eða Google Smartwallet.
Búið er að setja upp rafrænt Veiðikort sem valkost fyrir þá sem kjósa frekar að hafa kortið í símanum og nálgast bæklinginn rafrænt í gegnum símann. Rafræna kortið verður til að byrja með einungis selt á vefsíðu Veiðikortsins. Þeir sem ætla að gefa rafrænt Veiðikort geta prentað út QR kóða og laumað í jólapakkann.
Veiðikortið 2023
Hér fyrir neðan má sjá forsíðu bæklingsins fyrir Veiðikortið 2023.
Ljósmynd á korti og bæklingi: Kjartan Þorbjörnsson/Golli
Með jólaveiðikveðju,
Veiðikortið
Það er gaman að segja frá því að Hítarvatn er komið aftur í vatnaflóru Veiðikortsins. Það eru margir veiðimenn sem eiga góðar minningar frá Hítarvatni og munu þeir eflaust kætast að geta kíkt aftur í vatnið. Það verður áhugavert sjónarspil að skoða skriðuna sem féll í Hítardal árið 2018, fyrir þá sem hafa ekki þegar séð hana, en hún stíflaði Hítará sem myndaði nýjan farveg framhjá skriðunni.
Hér má sjá upplýsingar um vatnið fyrir þá sem vilja kynna sér vatnið betur. Helstu breytingarnar eru að ekki skal koma við á bænum Hítardal á leiðinni upp að vatni eins og áður. Veiðimenn þurfa því að tryggja að þeir séu með Veiðikortið eða dagsleyfi við höndina áður en lagt er að stað uppeftir því ekkert farsímasamband er við vatnið.
Við tökum fagnandi á móti Hítarvatni og vonum að veiðimenn verði duglegir að stunda það næsta sumar!
Með veiðikveðju,
Veiðikortið