Dreki úr Úlfljótsvatni og Hópið byrjað að gefa
Það er ekki bara í Þingvallavatni sem veiðast risastórir urriðar. Þorsteinn G. Kristmundsson var fékk rígvænan 14 punda urriða í Úlfljótsvatni sl. sunnudag.
Einnig berast fréttir af fínni veiði úr Hópinu en Guðmundur Erlingsson fékk fína urriðaveiði þar í gær. Guðmundur veiddi Þingeyramegin.