Cezary var aftur á ferð og nú í Meðalfellsvatni.  Hann varð var við mikið af fiski og fékk t.d. 3 sjóbirtinga, 1-2 kg. og 3 kg lax og 2 urriða sem voru tæpt kg.  Það er greinilegt að það er hægt að veiða fiska þrátt fyrir kuldann.

Við bentum Veiðikortshöfum á að þeir sem ætla til veiða í Meðalfellsvatn verða að vera með Veiðikortið á sér þegar veiðivörður vitjar.  Nánari upplýsingar um skráningar verða vonandi birtar á næstu dögum.
Mk,
Veiðikortið

0 Comments

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Fyrri frétt
Stökkvandi fiskar, frábært veður
Næsta frétt
Frábær kvöldveiði í Vífilsstaðavatni