Nokkur veiðivötn opnuðu í gær 1. apríl og var veðrið talsvert betra en menn höfðu spáð, en um kl. 19 var yfir 10° hiti á höfuðborgarsvæðinu.
Bílaplanið við Vífilsstaðavatn var þétt setið, en um kvöldmatarleytið voru rúmlega 10 veiðimenn að veiða.  Þar sem búið er að vera talsvert kalt síðustu daga og ennþá ís á hluta af vatninu var fiskurinn ekki í tökustuðu, en sérfróðir menn segja að nú sé aðeins dagaspursmál hvenær lætin byrja. 

Eitthvað voru menn að hafa í Meðalfellsvatni og heyrðum við af einum sem vissi um tvo sæmilega urriða sem fengust í gær á flugu.  Má reikna með því að margir eigi eftir að leggja leið sína í vatnið næstu daga.
Hér fyrir neðan má líta nokkrar myndir sem teknar voru í Vífilsstaðavatni um kl. 19 í gær, en fleiri myndir má sjá í myndaalbúminu undir Vífilsstaðavatni.
 
Veiðimenn í góðum gír 1. apríl 2009, en það var mikið líf á bökkunum en minna um aflamet.
 
 
 
 

0 Comments

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Fyrri frétt
Flottir fiskar úr Meðalfellsvatni!
Næsta frétt
Kringluvatn: Bíttumenn í dorgveiði 1. febrúar.