Það er ekki ónýtt fyrir vatnaveiðimenn að ná sér í þessa bók til að lesa í sumarfríinu, en hún er full af fróðleik fyrir veiðimenn, byrjendur sem lengra komna.

Vatnaveiði árið um kring
Glæný og vönduð handbók fyrir alla veiðimenn
 
 
 
 
Í þessari gagnlegu handbók um silungsveiði á Íslandi er farið yfir heilt ár í lífi veiðimanns, allt frá undirbúningi og fluguhnýtingum að frágangi eftir síðustu veiðiferð ársins. Fjallað er um kjörsvæði og hegðun silungsins, mismunandi veiðislóðir, græjur og grip, og eftir því sem veiðiárinu vindur fram eru kynntar ólíkar aðferðir og gefin góð ráð til að leysa úr þeim vandkvæðum sem upp kunna að koma.
 
Kristján Friðriksson er veiðimönnum að góðu kunnur fyrir greinaskrif um silungsveiði á vef sínum Flugur og skröksögur, www.fos.is. Persónulegar reynslusögur og athuganir hans munu gagnast reyndum sem óreyndum veiðimönnum og í Vatnaveiði – árið um kring gefst einstakt tækifæri til að öðlast innsýn í heim silungsveiðimanns og náttúruunnanda. Bókina prýðir fjöldi ljósmynda og skýringarmynda sem skerpa á efninu.
 

0 Comments

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Fyrri frétt
Veiðidagur fjölskyldunnar næsta sunnudag, 28.júní.
Næsta frétt
Bleikjan seinna á ferðinni eins og sumarið!