Nú styttist í veturinn og vatnasvæðin eru byrjuð að loka hvert af öðru.  Þann 31. ágúst lokaði t.d. Hítarvatn.  Í dag 15. september er síðasti dagurinn sem heimilt er að veiða í Þingvallavatni, Elliðavatni, Vífilsstaðavatni  og Hópinu. Hægt er að skoða samantekt yfir opnunar- og lokunartíma vatnanna hér.

Þegar veðrið er gott er haustið fallegur og skemmtilegur tími.  Heimilt er að veiða í mörgum vötnum til 30. september og má þar nefna nágrannavötnin 3 á Snæfellsnesi, Baulárvallavatn, Hraunsfjarðarvatn og Hraunsfjörður.  Þau gefa öllu jöfnu góða veiði í september.  Einnig er heimilt að veiða t.d. í Úlfljótsvatni út mánuðinn auk fleiri vatna sem hægt er að skoða í samantektinni.
 
Birgir Guðmundsson með flottan urriða sem tók í ljósaskiptunum.
Urriðinn tekur vel á haustin og þá láta oft stærstu fiskarnir sjá sig í ljósaskiptunum.
 
Með veiðikveðju,
Veiðikortið

0 Comments

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Fyrri frétt
Under the ice!
Næsta frétt
The day is getting shorter. Twilight zone tactics.