Eftir nokkur frekar róleg ár í Kleifarvatni virðist það vera að taka hressilega við sér. Svo virðist sem seiðasleppingar séu að skila sínu og virðist vera mikið af 5-8 punda urriðum í vatninu.

Við höfum frétt af þremur veiðimönnum sem hafa verið að gera það gott á bökkum vatnsins.  María Petrína Ingófsdóttir hefur verið duglega að kíkja í Kleifarvatnið í gegnum tíðina. Hún var þar í gærkvöldi og fékk einn 7 punda urriða á maðk.


Hér er María Petrína Ingólfsdóttir með 7 punda urriða sem hún fékk í vatninu í gærkvöldi.

Um síðustu helgi fékk Miroslav Sapina þrjá fallega fiska í einum að ferðum sínum og voru það allt vænir fiskar. Í aflanum var ein bleikja sem vóg 5 pund og tveir urriðar sem voru 6 og 7 pund.  Einnig fékk hann 8 punda urriða það 26. maí sem vorum búin að segja frá.


Hér má sjá fiskana þrjá sem Miroslav fékk í Kleifarvatni um síðustu helgi.

 

Helgi Þór Jónsson kíkti í vatnið þann 29. maí sl. og fékk hann fallegan 7 punda urriða.


Helgi Þór Jónsson með 7 punda hnöttóttan urriða sem hann fékk í Kleifarvatni 29. maí sl.


Spikfeitur og fallegur urriðinn sem Helgi Þór fékk.

Með veiðikveðju,

Veiðikortið

0 Comments

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Fyrri frétt
Hítarvatn – greiðfært upp að stíflu.
Næsta frétt
No bait fishing until 15th of June in the National Park.