Það er búið að vera frábær veiði í vötnunum síðustu daga og vikur.  Hér stiklum við á nokkrum fréttum frá nokkrum vötnum sem eru í Veiðikortinu.  Hvetjum veiðimenn einnig til að senda okkur fleiri fréttir.

Elliðavatn – Bleikjan kominn aftur!
Það eru einstaklega ánægjulegar fréttir sem berast úr Elliðavatni, en góð veiði hefur verið í því frá opnun.  Mest hefur verið að veiðast af urriða en nú virðist bleikjan vera að taka í meira mæli.  Veiðimenn sem stundað hafa vatnið segjast ekki hafa séð eins mikið af bleikju í vatninu líkt og núna, þannig að vonandi er bleikjan að taka við sér og stofninn að styrkjast.  Rögnvaldur Rögnvaldsson fór ásamst föður sínum í vatnið í gær og lentu þeir heldur betur í óvæntri veiði en þeir fengu hvorki meira né minna en 30 fiskar á þremur klukkutímum og var bleikjan meginuppistaðan í aflanum.  Hér fyrir neðan má sjá mynd af aflanum.


Ánægður veiðimaður með glæsilegan afla í bakgrunn!


Hér má sjá betri mynd af glæsilegum afla sem þeir feðgar fengu í gær, 14. júní í Elliðavatn.  Bleikjan er að koma sterk inn!

 

Hraunsfjörður hefur verið að gefa vel síðustu daga.  Hjörleifur Steinarsson fer árlega í Hraunfjörðinn og var hann þar fyrir nokkrum dögum. Það var mikið líf í firðinum og fengust 5 bleikjur í ferðinni og sú stærsta var 54cm.

   
Hjörleifur með fallegar bleikjur úr Hraunsfirði.

Melrakkaslétta:
Við höfum heyrt spurning af veiðimönnum sem hafa verið að fá fína veiði á Melrakkasléttunni.  Þóroddur F. Þóroddsson kíkti í Æðarvatnið þann 10. júní og fékk tvo 1-2 punda urriða.  Hann fór aftur til veiða þar 14. júní og fékk hann þá einn urriða og eina bleikju í vatninu og fékk hann fiskana á Nobbler flugu.  Hann reyndi einnig í Arnarvatni en varð ekki var þar.  Hann fékk líka fína veiði í Harðbaksvatni, sem er reyndar ekki í Veiðikortinu.  Hann fékk reyndar einnig talsvert af smábleikju á þurrflugu en sleppti þeim aftur.

Þingvellir:
Það er búið að vera algjör bleikjuveisla á Þingvöllum síðustu daga og vikur! Veiðimenn hafa verið að fá vænar bleikjur upp í 5 pund.  Einn og einn urriði er þó að slæðast með ennþá. Kristján Einar Kristjánsson fór í vatnið fyrir nokkrum dögum ásamt dóttur sinni Kolbrúnu Camillu og hófu þau veiðar við Vatnskotið. Hún veiðir á flugu eins og pabbi sinn.  Hún setti að sjálfsögðu undir fluguna Kolbrúnu, og gerði lítið úr föður sínum þar sem hún fékk 60cm urriða í fyrsta kasti!  Vel gert hjá Kolbrúnu!  


Kolbrún Camilla með 60 cm fiskinn sem hún fékk í fyrsta kasti á fluguna Kolbrúnu!  

Úlfljótsvatn:
Sama á við um Úlfljótsvatn en þar hefur verið feiknafín veiði síðustu daga.  Veiðimenn hafa verið að fá mikið af fínni bleikju og inn á milli hefur einn og einn urriði verið að veiðast.

Syðradalsvatn;
Við kíktum við í Syðridalsvatni um helgina og urðum varir við bleikju þannig að hún er mætt á svæðið.  Yfirleitt gengur eitthvað af bleikju svona snemma í vatnið.  Nú styttist í stórstreymi þannig að búast má við að hún fari að ganga í meira mæli næstu daga.  Vekjum athygli veiðimann á því að veiðikortshöfðum er ekki heimilt að veiða í Ósánni, sem rennur úr vatninu, en hægt er að kaupa veiðileyfi í ánna í Shellskálanum í Bolungavík.


Við Syðridalsvatn 14. júní 2014.


Við Syðridalsvatn 14. júní 2014

 

Með veiðikveðju,

Veiðikortið

 

 

 

 

0 Comments

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Fyrri frétt
Bleikjuveisla við Þingvallavatn
Næsta frétt
Sléttuhlíðarvatn og Hraunsfjörður