Það er alltaf gaman að fá skemmtilegar veiðimyndir.  Sigurbjörg Jóhanna er greinilega komin með lag á að veiða Þingvallableikjuna, en hún tók þessar tvær fallegu bleikjur þar þann 5. júlí s.l. í 17° hita kl. 8 um morguninn.  Það er fátt sem toppar fallegan morgunn á Þingvöllum þegar bleikjan er á svæðinu.

 
Sigurbjörg Jóhanna með tvær boltableikjur sem hún veiddi á flugu 5. júlí sl.
Fyrir þá sem vilja ná tökum á veiði í Þingvallavatni, þá er rétt að benda á að þann 17. júlí nk. stendur Veiðikortið fyrir námskeiði á Þingvöllum í samstarfi við Veiðiheim og Þjóðgarðinn á Þingvöllum.  Námskeiðið verður kynnt betur seinna í dag eða um helgina og því gott að benda vinum og kunningjum á að fylgjast vel með um helgina því það verður takmarkaður fjöldi þátttakenda.  Eftir námskeiðið verða kennarar Veiðiheims fram eftir degi að aðstoða veiðimenn meðan þeir eru að komast af stað.
Síðustu daga höfum við verið að fá fregnir að mjög góðri bleikjuveiði í Hópinu, og einn góðkunningi Veiðikortsins fékk þar um 10 bleikjur á hálfum degi upp í 5 punda bolta.  Einnig hefur veiði verið að glæðast í öðrum vötnum með hækkandi hita og hann Benjamin fékk fína veiði í Eyrarvatni, en hann fékk einn 3 punda urriða og tvo um pundið.  Hér má sjá mynd af honum með urriða sem er um eitt pund.
 
Benjamin með urriða úr Eyrarvatni.
 
Við þökkum fyrir myndirnar og hvetjum veiðimenn til að senda okkur fleiri myndir og skrá afla á www.veidibok.is 
Með bestu kveðju,
Veiðikortið
 

0 Comments

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Fyrri frétt
Flott veiði í vötnunum
Næsta frétt
Flottir fiskar úr Úlfljótsvatni og Þingvallavatni II.