Sumardagurinn fyrsti er á morgun, 24. apríl.  Þá opnar Elliðavatnið en margir veiðimenn bíða spenntir eftir þeim degi enda byrja margir veiðimenn ekki að veiðitímabilið fyrr en þá.  Allt útlit er fyrir að veðrið verði gott og hlýrra heldur en var í fyrra, en þá fraus í lykkjum veiðamanna fyrst um morguninn.
 
Þrátt fyrir það var fallegt veður í fyrra þegar Elliðavatnið opnaði.  Það var frekar kalt í dag og það fraus í lykkjum á veiðistöngum veiðimanna fyrst um morguninn en stilla og fallegt veður. Það voru margir veiðimenn sem mættu í vatnið þrátt fyrir kuldann.  Menn voru í raun ekki að veiða mikið en það komu þó nokkrir fallegir fiskar á land. 

 
Aðallega voru menn að veiða urriða, enda er urriðinn frekar á hreyfingu í köldu veðri en bleikjan lét þó aðeins sjá sig.  Urriðarnir sem veiðimenn voru að fá voru í góðum holdum og komu greinilega vel undan vetri og voru menn að veiða fiska sem náðu allt að 4 pundum í dag.  Vonum að sama verði upp á teningnum á morgun.
 
Menn voru að veiða fiska um allt vatn í rauninni en fiskar voru að fást út á Engjum, Þingnesi, Helluvatni og Hólmsá svo dæmi séu tekin.  Færri voru við veiðar Kópavogsmegin og höfum við ekki fengið fréttir þaðan.
 
Þeir félgar sem stóðu að Sportveiðivefnum og Sportveiði TV hafa reyndar tekið ákvörðun um að hætta með vefinn og verður mikill missir af þeim, en vonandi koma þeir bara tvíefldir til leiks þegar betur stendur á.

 
 
Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir sem við tókum í fyrra.  Einnig viljum við hvetja veiðimenn til að fylgjast með okkur á Facebook, en þar geta veiðimenn auðveldlega sent myndir inn á síðuna okkar beint af bakkanum auk þess sem hægt er að fylgjast betur með enda reynum við að deila þar fréttum sem tengjast beint eða óbeint vatnasvæðum Veiðikortsins.
 
Halldór Gunnarsson með glæsilegan urriða sem hann fékk í Helluvatninu snemma morguns.
 
Veiðimaður að vaða á Engjasvæðinu.
 
Flottir fiskar sem fengust snemma morguns, 24. apríl 2013, við Þingnesið.
 
Gæsir á flugi og borgin í bakgrunn.
 
Veiðikortið verður á bakkanum í fyrramálið og fylgist með gangi mála.  Það verður gaman að sjá hvernir vatnið kemur undan vetri og ekki skemmir fyrir að veðurspáin fyrir morgundaginn er góð, en reikna má með tveggja stafa hitatölu um hádegi!  
 
 
Fyrir þá sem eiga eftir að kaupa sér Veiðikortið er hægt að nálgast það á næstu bensínstöð N1 og Olís, Póstinum eða næstu veiðivöruverslun þar sem þú getur líka fengið góð ráð varðandi flugnaval fyrir Elliðavatnið.
 
 
Góða skemmtun á morgun og Veiðikortið óskar veiðimönnum gleðilegs sumars!
 
Veiðikortið
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

0 Comments

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Fyrri frétt
Elliðavatn var flott í morgun!
Næsta frétt
Þingvallavatn lake has opened – nice trouts!