Stutt eftir – ágæt veiði
Höfum heyrt af einhverri veiði hér og þar þrátt fyrir að menn hafa minnkað ástundunina með kólnandi veðurfari. Sjálfagt eru menn að gera fína sjóbirtingsveiði í Víkurflóði og Þveit, en einnig hafa menn verið að fá fallega veiði í Kleifarvatni og Úlfljótsvatni. Einn veiðimaður sem var í Kleifarvatni í síðustu viku setti í 6 fiska en landaði þremur fínum fiskum 1,5, 2 og 2,5 pund að þyngd.