Þingvellir – Fallegur morgunn!
Það voru kjöraðstæður á Þingvöllum í morgun. Hitinn um 14-18 gráður og nánast logn en þó smá gára á vatninu. Við hittum Hans Van Klinken, stórveiðimann og virtan fluguhnýtara, á Þingvöllum og var þetta fyrsta skipti sem hann veiðir í vatninu og má segja að vatnið hafi tekið vel á móti honum.