Veiðimaðurinn Gísli P skellti sér í Kleifarvatnið fyrir fáeinum dögum.  Þar fékk hann  um þriggja punda urriða sem honum þótti nú ekki mjög þykkur á kviðinn eða hreinlega frekar mjósleginn.
Þegar heim var komið opnaði hann fiskinn og kannaði Gísli hvað væri í maga hans.  Þá kom í ljós að þessi ca. 3 punda urriði þessi hafði gleypt hagamús í heilu lagi eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.
Samkvæmt heimildum eiga hagamýs það til að synda í flæðamáli vatna og eru því auðveld bráð urriða sem leitar upp á grunnið í ætisleit.   Algengar er þó að mýs lendi í kjafti urriða í ám og lækjum.  Mörg dæmi eru t.d. um að urriði í Laxá í Mývatnssveit hafi verið með mús í maga.

 
Hér má sjá leifarnar af hagamúsinni eftir dvöl í urriðamaga.
Við þökkum Gísla fyrir að deila þessu með okkur.
Veiðikortið
 

0 Comments

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Fyrri frétt
Hraunsfjörður – bleikjan mætt á svæðið
Næsta frétt
Héðan og þaðan – urriðaveiðin í hámarki og bleikjan mætt á Þingvelli