Fréttatilkynning frá Veiðikortinu og Veiðifélagi Elliðavatns:
 
Elliðavatn komið í Veiðikortið
 
Veiðikortið ehf.  og Veiðifélag Elliðavatns hafa skrifað undir samning til þriggja ára um aðild Elliðavatns að Veiðikortinu og tekur samningurinn gildi strax á komandi  veiðitímabili. Veiði hefst í vatninu Sumardaginn fyrsta 2013.

 
Undanfarin tvö ár hefur Stangaveiðifélag Reykjavíkur selt veiðileyfi í Elliðavatn en nú hafa Veiðifélag Elliðavatns og Stangaveiðifélag Reykjavíkur orðið ástátt um að slíta þeim samningi sem gerður var vorið 2011 og á hvorugur aðili kröfu á hinn við þau málalok
 
Samningur þessi er mikið ánægjuefni fyrir handhafa Veiðikortsins á höfuðborgarsvæðinu enda er vatnið í útjaðri höfuðborgarsvæðisins og því stutt að fara fyrir marga.  Veiðisvæðið hefur verið vannýtt útivistarparadís og er með þessu verið að auðvelda veiðimönnum og fjölskyldufólki aðgang að svæðinu. 
 
Svæðið sem um ræðir er Elliðavatn, Helluvatn, Hólmsá auk Nátthagavatns.  Veiðisvæðið er mjög fjölbreytt og aðgengilegt að mestu leiti og hentar því vel jafnt fyrir fjölskyldufólk með börn sem og aðra veiðimenn sem leita eftir krefjandi veiði.  Veiðireglur og nánari upplýsingar varðandi veiðitilhögun verða kynnt nánar í bæklingi Veiðikortsins 2013 sem er væntanlegur í lok nóvember, sem og á heimasíðu Veiðikortsins.
 
Frá undirritun samnings um Elliðavatn.  Ólafur E. Jóhannsson f.h. stjórnar Veiðifélags Elliðavatns (t.h.) og Ingimundur Bergsson f.h. Veiðikortsins (t.v.).
 
Með veiðikveðju,
 
Veiðikortið og Veiðifélag Elliðavatns

0 Comments

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Fyrri frétt
Héðan og þaðan – Úlfljótsvatnið að koma sterkt inn.
Næsta frétt
Urriðadans á Þingvöllum laugardaginn 13. október