Vel heppnuð sumarhátíð við Elliðavatn á sumardaginn fyrsta

Sumarhátíð var haldin við Elliðavatn á sumardaginn fyrsta í samstarfi Veiðikortsins, Stangaveiðifélags Reykjavíkur (SVFR), Skógræktarfélags Reykjavíkur og Veiðifélags Elliðavatns. Mikið var um að vera og fjölmenni mætti til að njóta dagsins við vatnið í góðri stemmningu.

Fjölskylda saman á Sumarhátið við Elliðavatn 2026

Strákarnir í Tökustöðinni, Caddis-bræðurnir Hrafn og Ólafur Ágúst ásamt Óla Urriða sáu um að fræða gesti yfir daginn, auk þess sem Örn Hjálmarsson og Geir Thorsteinsson stigu á svið og tóku þátt í dagskránni.

Gestir gæddu sér á grilluðum pylsum og sykurpúðum, kaffi og öðru góðgæti og var samveran við Elliðavatnsbæinn lífleg frá morgni og fram eftir degi. Fjölskyldur og vinir nutu þess að hittast, spjalla og fylgjast með lífinu við vatnið þar sem yngstu veiðimennirnir létu sig ekki vanta.

Gestir á sumarhátíðinni að fræðast um lífríkið og náttúruna í Elliðavatni

Nóg um að vera fyrir börnin

Fyrir börnin var skipulögð fjölbreytt dagskrá sem vakti mikla lukku. Þar má nefna vinsælan pödduratleik þar sem þátttakendur fengu að skoða smádýr úr vatninu og fræðast um lífríkið á skemmtilegan og lifandi hátt.

Óli Urriði (Ólafur Tómas) sýndi skemmtilega teiknimynd um Begga Blóðorm sem var afar vel tekið. Einnig fengu börn og fjölskyldur tækifæri til að prófa sig áfram með veiðistangir við vatnsbakkann og margir stigu sín fyrstu skref í veiði.

Ýmis önnur afþreying var í boði yfir daginn og mátti sjá líf og fjör víða um svæðið. Fræðsla um veiði og náttúru vakti áhuga gesta og var greinilegt að slíkur viðburður skapar góð tækifæri til að kynnast útivist og lífríki svæðisins.

fólk að veiða síli í Elliðavatni á sumarhátíðinni 2026

Árlegur viðburður sem er kominn til að vera

Sumarhátíðin hefur fest sig í sessi sem skemmtilegur vorviðburður fyrir fjölskyldur og veiðifólk og er frábært tækifæri til að kveðja veturinn og bjóða sumarið velkomið. Slíkar samkomur styrkja samfélagið, efla áhuga á útivist og skapa jákvæð tengsl við náttúruna.

Skipuleggjendur vilja þakka öllum sem mættu og tóku þátt í deginum, sem og samstarfsaðilum og sjálfboðaliðum sem lögðu sitt af mörkum til að gera daginn jafn vel heppnaðan og raun bar vitni.

Drengur grillar pylsur á sumarhátíðinni Við Elliðavatn
Feðgar brosa í myndavélina á sumarhátíðinni 2026
Gestir á Elliðabænum að hlusta á fræðslu um Elliðavatn
Stelpur með háfa að veiða síli á sumarhátíðinni 2026
Maður að veiða í Elliðavatni á sumarhátíðinni

Sumarhátið við Elliðavatn sumardaginn fyrsta

Veiðikortið, SVFR, Skógræktarfélag Reykjavíkur og Veiðifélag Elliðavatns standa fyrir sumarhátíð veiðimanna sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 23. apríl.

Dagskráin verður í höndum fræðslunefndar SVFR auk Skógræktarfélags Reykjavíkur þar sem margt skemmtilegt og fræðandi verður í boði fyrir börn og fullorðna.
Aðilar frá SVFR verða veiðimönnum innan handar og veita góð ráð milli 11-13. Hvetjum alla til að taka með sér veiðistangir. Þeir sem vilja taka þátt í skemmtilegum pödduratleik mega taka með sér krukku og sílaháf en eitthvað verður þó til á staðnum. Veiðifélag Elliðavatns býður upp á veiði í vatninu meðan hátíðin stendur yfir.

Dagskrá:

Kl. 10:00 – 11:00 Veiði og lífríki Elliðavatns
Caddisbræður og Óli Urriði verða með sína árlegu fræðslukynningu og umræðu. Sérstakir Elliðavatnssnillingar verða á svæðinu.

Kl. 11:00 – 12:00 Skógarþrautir
Skógarþrautir með Skógræktarfélagi Reykjavíkur. Varðeldur og sykurpúðar ef gróður verður ekki of þurr.

Kl. 12:00 – 13:30 Veiðihátíð krakkanna
Kl. 12:00 Fræðsluefni fyrir börn á myndrænu formi sem er unnið af Tökustuð.
Kl. 12:30 Lífríkið skoðað, léttur og skemmtilegur ratleikur við Elliðavatnsbæinn.
Kl. 13:00 Grillaðar pylsur.

Skemmtilegir leikir fyrir börnin með vinningum.

Hér er hlekkur til að skrá sig á viðburðinn á FB

Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir frá því í fyrra.

Styttist í veiðitímabilið!

Það má segja að niðurtalning sé hafin í að veiðitímabilið 2026 fari af stað, en fyrstu vötnin opna formlega 1. apríl.

Hægt er að skoða töfluna yfir opnunartíma vatnanna til að sjá hvenær vötnin opna fyrir veiði.

Vinsælustu vötnin 1. apríl hafa verið vötnin í nágrenni höfuðborgarsvæðið eins og Vífilsstaðavatn og Hraunsfjörður á Snæfellsnesi en nauðsynlegt að kanna áður hvaða vötn eru ekki ísilögð. Nýja svæðið í Þingvallavatni, Hagavíkin, opnar fyrir veiði 1. apríl og er líklegt að svæðið muni njóta vinsælda í sumar, en þar má reyndar aðeins veiða á flugu.

Nú er því rétti tíminn til að fara að undirbúa veiðigræjurnar, taka til í veiðidótinu og kanna hvort vöðlurnar leki nokkuð eftir veturinn.