Við höfum fengið margar góðar fréttir af aflabrögðum á Þingvöllum síðustu daga. Menn hafa verið að fá allt að 20 punda urriðum og bíðum við eftir myndum til að geta sýnt frá því. Einnig er búið að vera líflegt í Úlfljótsvatni, en við fengum fréttir frá veiðimanni sem fékk tvo 4 punda urriða og einn 8 punda urriða þar á Toby seinnipartinn 6. maí.
Urriði með sögu! Upplýsingar frá Laxfiskum um 9 punda urriðann sem veiddist 1. maí.
Eins og getið var um í frétt okkar 1. maí var 9 punda urriðinn sem Sigurður Bogason fékk á Þingvöllum merktur. Í framhaldi hafði veiðimaðurinn samband við Jóhannes hjá Laxfiskum.
Kleifarvatnið kemust sterkt inn í opnun, en vatnið opnaði 15. apríl, eða tveim vikum fyrr en vanalega. Atli Sigurðsson fékk 3 urriða um 3 pundin í gær, 17. apríl og Nökkvi Svavars og sonur hans fengu einnig ánægjulega veiði. Sjálfsagt hafa fleiri gert fína veiði án þess að við höfum fengið upplýsingar af því. Veðrið í dag var greinilega mjög sérstakt, en það var bæði sól, rok, rigning, logn, snjór og slydda.
Greinilegt er að hitinn er farinn að hjálpa til í vatnaveiðinni.
Arkadiusz Gieleta og Arkadiusz Jarosz stóðu vaktina í dag og létu rigninguna ekki á sig fá og fengu nokkra fiska. Gera má ráð fyrir að margir leggi leið sína í kjósina á morgun, sunnudag, til að kanna málin.