Gíslholtsvatn er eitt af nýju vötnunum í Veiðikortinu 2014. Vatnið hefur iðulega verið fengsælt þegar ísa leysir og hafa veiðimenn skotist þangað áður en önnur vötn opna jafnvel í febrúar og mars. Mikill ís myndaðist á vatninu eins og flestum öðrum vötnum í vetur og er vatnið fyrst að hrista af sér ísinn núna.
Urriðinn er sennilega kominn í ætisleit og því ættu næstu vikur að vera góðar í vatninu. Vatnið er staðsett rétt austan við Þjórsá og er í um 85 km fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu.
Við viljum benda veiðimönnum á að þar sem jarðvegur er ennþá mjög blautur hvetjum við menn til að leggja bílunum frekar út í vegarkannti heldur en að keyra inn á túnplanið ef menn ætla að veiða í suðurenda vatnsins til að hlífa jarðveginum.
Til að skoða nánari upplýsingar um Gíslholtsvatn – smelltu hér – en annars eru hér fyrir neðan nokkrar myndir frá svæðinu sem teknar voru síðasta sumar. Myndir væru vel þegar frá veiðimönnum sem ætla að kíkja þangað næstu daga.
Með veiðikveðju,
Veiðikortið
0 Comments