Nú eru vötnin heldur betur lifnuð við. Margir hafa lagt leið sína í vötnin síðustu daga og er bleikjan farin að taka við sér. Eitthvað er ennþá að veiðast í vötnunum af urriða, þrátt fyrir að það hafi heldur dregið úr því. Menn hafa verið að fá fallega urriða í Úlfljótsvatni og Þingvallavatni svo dæmi séu tekin. Nú er bleikjan að taka völdin!
Úlfljótsvatn:
Ríkarður Hjálmarsson og sonur hans Jón Hugi áttu eftirminnilegan dag í Úlfljótsvatni 17. júní, en Jón Hugi, ungur og efnilegur veiðimaður hefur verið að æfa sig í fluguveiði upp á síðkastið og er greinilega genginn á bragðið. Nú vill hann bara veiða á flugu, enda landaði hann nokkrum fallegum bleikjum á sjálfan þjóðhátíðardaginn. Hér koma nokkrar myndir:
Jón Hugi með eina á í Úlfljótsvatni 17. júní.
Nóg var að bleikjunni 17. júní.
Fallegar bleikjur úr Kirkjuvíkinni.
Þingvallavatn:
Lárus skellti sér í Þingvallavatnið þann 11. júní og veiddi milli klukkan 19-22. Hann fékk tvær fallegar bleikjur, stærri bleikjuna u.þ.b. 3 pund veiddi hann á á fluguna Ölmu Rún og minni bleikjuna á stærri flugu sem er eftirlíking af kuðung. Þessar flugur er hægt að fá í öllum veiðivöruverslunum.

Falleg kvöldveiði hjá Lárusi í Þingvallavatni 11. júnií 2009.
Jón Viktor fékk þennan fallega 9 punda urriða í Þingvallavatni 12. júní á Íslandsspúninn.
Jón Viktor skákmeistari, er líka öflugur veiðimaður og krækti í þenna 9 punda urriða í Þingvallavatni 12. júní.
Hraunsfjörður:
Margir hafa lagt leið sína í Hraunsfjörð og þar iðar allt af lífi. Síðustu daga komst reyndar upp um veiðimenn sem höfðu lagt net í Hraunsfjörður og var lögreglu tilkynnt um verknaðinn. Veiðimenn voru ekki á staðnum, en málið er í skoðun.
Anna Margrét fór á húsbílnum sínum (Veiðiskreppi)og veiddi nokkrar bleikjur í fallegu veðri. Ekki leiðinlegt að eiga veiðihús á hjólum og geta flakkað á milli veiðivatna og haft það notarlegt. Hér koma nokkrar myndir sem Anna Margrét sendi okkur




Flotti matfiskar!


Fallegt í Hraunsfirði.
Við þökkum veiðimönnum kærlega fyrir myndirnar og hvetjum enn og aftur veiðimenn til að senda okkur veiðiskýrslur sem og myndir eða fréttir af veiði.
Bestu kveðjur og góða helgi!
Veiðikortið
0 Comments