Kristinn Jóhann Lund fór ásamt tveimur félögum sínum á Melrakkasléttuna föstudaginn 14. júní. Þeir voru við veiðar milli 8 og 16 og lönduðu þeir 30 fiskum, bæði bleikjum og urriðum. Bleikjan var um 1-1,5 pund og urriðarnir stærri eða um 2-3 pund.
Fiskana fengu þeir aðallega á straumflugur. Bleikur, appelsínugulur Nobbler voru sterkir sem og Mýslan, Dýrbítur í bleiku og svörtu sem og Black Ghost.
Þeir félagar mæla með þessu svæði enda algjör paradís að vera það á fallegum sumardegi sem nóttu.
Með veiðikveðju,
Veiðikortið
0 Comments