Kaupa – Heildsala
Það er úr miklu að moða þegar kemur að ráðleggja við val á flugum í vatnaveiðina, enda hægt að velja úr þúsunum flugna.
Gott er að vera með úrval af púpum, púpum með kúluhaus, straumflugum og nokkrar þurrflugur til að velja úr. Flugnaval fer yfirleitt eftir reynslu og smekk hvers og eins.
Til að einfalda hlutina fyrir byrjendum nefnum við hér fyrir neðan fimm flugur í hverjum flokki, en þessar flugur ættu að geta afgreitt flest skilyrði í silungsveiði.
Krókurinn
Peacock
Watson Fancy
Killer
Pheasant tail
Black Gnat
Klinkhammer
Evrópa
Royal Coachman
Adams
Black Ghost
Nobbler
Dýrbítur
Bleik og blá
Heimasætan
Auðvelt er að nálgast myndir af þessum flugum með hjálp leitarvéla á netinu og á heimasvæðum veiðivöruverslana. Fyrir þá sem vilja hnýta sínar flugur sjálfir má finna uppskriftir og kennslumyndbönd á Youtube.
Gangi ykkur vel!
Hér getur þú sótt bæklinginn sem Geir Thorsteinsson gaf út um Elliðavatn.
Hægt er að kaupa maðka í flestum veiðivöruverslunum. Einnig má finna aðila sem eru að selja maðka á spjallvefum eins og t.d. www.veidi.is svo dæmi séu tekin.
Við óskur veiðimönnum og landsmönnum öllum gleðilegt og fengsælt árs og þökkum fyrir árið 2013!
Veiðikortið óskar veiðikortshöfum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári!
Takk fyrir árið sem er að líða!