Meðalfellsvatn er farið að gefa fallega fiska eins og í fyrravor. Talsvert hefur verið um að menn séu að veiða hoplaxa, sjóbirtinga sem og fína urriða. Cezary skellti sér í vatnið í fyrradag og fékk glæsilega veiði. Hann var við veiðar í um 5 klukkustundir og fékk 28 urriða 1-3 pund og 6 sjóbirtina 1,5 – 6 pund. Einnig var að veiðast eitthvað af hoplaxi.
Veðrið er búið að vera mjög ákjósanlegt þannig að við hvetjum menn að skjótast í Meðalfellsvatnið og prufa!
Veiðikortið þakkar Cezary kærlega fyrir myndirnar og mættu fleiri veiðimenn gjarnan senda okkur myndir frá vötnunum, jafn landslagsmyndir sem aflamyndir á veidikortid@veidikortid.is
Falleg veiði!
Myndir: Cezary
Með bestu kveðju,
Veiðikortið.
0 Comments