10. jún. 2011
 
Fín bleikjuveiði í Hópinu
Flest veiðivötn hafa farið heldur seinna á stað en venjulega sökum kulda.  Hópið er það engin undantekning en það virðist sem að það sé eitthvað að taka við sér.  Ólafur Sigfús Benediktsson frá Blönduósi sendi okkur fregnir og myndir og við gefum honum bara orðið en myndirnar eru fyrir neðan:

 
"Fórum í veiðiferð í Hópið 7. júní út á Björgin. Ágætis veður var þegar við mættum á svæðið um kl 10:30 en það fór fljótlega að blása köldu úr norðri á okkur eins og síðustu daga eða vikur. Við urðum strax varir við eitthvað líf og fljótlega voru 2 bleikjur komnar á land, eftir það var nokkuð rólegt hjá okkur. Við færðum okkur reglulega og köstuðum spúninum nokkrum sinnum á hverjum stað en það var lítið að gerast. Allt í einu fóru hlutirnir að gerast og á ca 40 mín veiddi ég 8 bleikjur og 2 sjóbirtinga. Alla fiskana veiddi ég á nákvæmlega sama staðnum og það var allt brjálað að gera. Við hættum um kl 15:00 og þá voru komnir 15 fallegir fiskar á land á bilinu 1-2 pund. Frábær veiðiferð í frekar köldu veðri."
 
 
 
 
Kveðja frá Blönduósi
Ólafur Sigfús Benediktsson
Jakob Svavarsson 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Við þökkum Ólafi kærlega fyrir að miðla upplýsingunum og óskum honum til hamingju með flottan afla.
 
Með veiðikveðju,
Veiðikortið

0 Comments

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Fyrri frétt
Fín veiði í Kleifarvatni og bleikjuveiðin að aukast á Þingvöllum
Næsta frétt
Tommi í Veiðiportinu fékk draumafiskinn á Þingvöllum!