Þriðja árið í röð mun FOS.IS standa fyrir hnýtingarviðburði nú í febrúar. Eins og áður fer viðburðurinn fram á Facebook þar sem hnýtarar setja inn myndir af þeim flugum sem þeir eru að hnýta og áhugamenn um flugur og fluguhnýtingar geta virt afraksturinn fyrir sér.

 

Að þessu sinni verður aukið verulega við dagskránna því í samstarfi við Ármenn verða haldin fern hnýtingarkvöld í Árósum, Dugguvogi 13, frá kl. 20 – 22, alla mánudaga í febrúar. Þar gefst gestum kostur á að kynnast handbragði nokkurra þekktra hnýtara, s.s Stefáns Hjaltested, Robert Nowak, Ingvars Ingvarssonar og Hjartar Oddssonar, auk þess sem gestum er boðið að nýta sér aðstöðu Ármanna til hnýtinga og fluguspjalls yfir rjúkandi kaffibolla. Að auki munu styrktaraðilar Febrúarflugna vera á staðnum og kynna hnýtingar- og stangveiðivörur sínar fyrir gestum og gangandi.

Í fyrra bárust hátt í 400 flugur í viðburðinn og vonir standa til að enn fleiri berist að þessu sinni. Ungir og upprennandi hnýtarar eru eindregið hvattir til að leggja sitt að mörkum, sýna flugur sínar og handbragð og njóta leiðsagnar reyndari hnýtara á hnýtingarkvöldunum.


Hér má sjá fallegustu fluguna úr keppninni í fyrra eftir Ingvar Ingvarsson

Þess má geta að nöfn nokkurra heppinna þátttakenda verða dregin út í lok mánaðarins og hljóta veglegar viðurkenningar frá styrktaraðilum viðburðarins sem eru Árvík, Flugubúllan, Joakim‘s, Sunray.is, Veiðikortið og Vesturröst.

Allar nánari upplýsingar og dagskrá má nálgast á https://fos.is/februarflugur/

 

 

0 Comments

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Fyrri frétt
Starfmannatilboð Íslandsbanka
Næsta frétt
Extreamly warm winter and no ice!