Nú lifnar yfir veiðimönnum enda alltaf fagnaðefni þegar veiðitímabilið hefst formlega.
Mörg skemmtileg vötn opna formlega á morgun og má þar nefna Vífilsstaðavatn, Meðalfellsvatn og vötnin í Svínadal, þ.e.a.s. Þórisstaðavatn, Eyrarvatn og Geitabergsvatn. Hraunsfjörður opnar einnig á morgun en þar geta veiðimenn gert fína veiði snemma á vorin. Einnig opna vötnin Þveit og Syðridalsvatn við Bolungavík.
Svo virðist sem flest vötn séu orðin veiðanlega enda lítill sem enginn ís á flestum þeirra.
Veðurspáin er þó kuldaleg en vonandi verður veðrið fallegt þannig að menn geti látið sig hafa það að kasta fyrir silung á þessum hátíðardegi veiðimanna.
Við hvetjum veiðimenn sem verða á veiðum á morgun að senda okkur fréttir og einnig að nota #veiðikortið2015 á Instagram og Twitter. Einnig er einfalt mál að senda myndir beint af bakkanum inn á Facebook síðu okkar þannig að veiðimenn geti séð hvernig staðan er frá fyrstu hendi.
Vötn sem opna í apríl: | Opnar | Lokar | ||
Eyrarvatn í Svínadal | 1.apr | 25.sep | ||
Geitabergsvatn í Svínadal | 1.apr | 25.sep | ||
Hraunsfjörður á Snæfellsnesi | 1.apr | 30.sep | ||
Meðalfellsvatn í Kjós | 1.apr | 20.sep | ||
Syðridalsvatn við Bolungavík | 1.apr | 20.sep | ||
Vífilsstaðavatn í Garðabæ | 1.apr | 15.sep | ||
Þórisstaðavatn í Svínadal | 1.apr | 25.sep | ||
Þveit við Hornafjörð | 1.apr |
30.sep |
Hér fyrir neðan koma nokkrar myndir frá opnuninni í fyrra:
Fjölmenni var við bakka Vífilsstaðavatns 1. apríl 2014. Það verður gaman að sjá hvernig gengur á morgun.
Veiðikonurnar og systurnar Kristín og Vilborg Reynisdætur voru klárar í slaginn í fyrra.
Það getur skipt sköpum að vera vel birgur af flugum þegar silungurinn er vandlátur.
Hér má einnig skoða fréttina sem við birtum í fyrra eftir opnunina í Vífilsstaðavatni 2014.
Góða skemmtun kæru veiðimenn og til hamingju með að nýtt veiðitímabil sé að ganga í garð – ballið er að byrja!
Veiðikortið
0 Comments