Björgvin Guðmundsson skaust eina kvöldstund í Úlfljótsvatn og fékk pattaralega bleikju á fluguna.
Það er fínn lofthiti og bleikjan farin að veiðast í auknum mæli við landið. Hvetjum því menn til að nota góða veðrið og skella sér í veiði. Í dag er veiðidagur fjölskyldunnar, þannig að það er frítt í fjölda veiðivatna vítt og breitt um landið. Sjá eldri frétt um Veiðidag fjölskyldunnar.
Falleg veiði sem Björgvin Guðmundsson fékk á fluguna 23. júní sl.
0 Comments