Kleifarvatn hefur verið að koma gríðarlega sterkt inn í vor sem veiðivatn og urriðastofninn sjálfsagt sjaldan verið sterkari. Frétt okkar í gær um að það væri ekki veiðiveður féll ekki að hörðum veiðimönnum sem fóru í Kleifarvatn í gær.
Haukur Bjarnason og félagar í Veiðifélaginu Bobbarnir www.123.is/bobbar fóru í gærkvöldið í vatnið og veiddu 7 glæsilega urriða. Jóhann sendi okkur einnig upplýsingar um að hann hafi fengið 4 fína urriða í vatninu, 1stk 3 pund, 2 stk 2 pund og 1 stk 1 pund.
Í síðustu viku var Guðmundur Falk líka mjög duglegur og sendi okkur upplýsingar um afla sem og upplýsingar um veðurskilyrði. Þann 5. maí, í logni, birtu og 8 stiga hita fékk hann á Lambatanga 4 urriða frá 1,5 pundi upp í 2,5 pund. Daginn eftir, þann 6. maí fékk hann tveggja og 3 punda urriða á sama stað. Þann 9. maí fékk hann 17 urriða í roki og 3 stiga hita, tveggja til þriggja punda auk þess sem einn var 6 pund. Allt fékk hann þetta á blanda agn, þ.e.a.s. suma á spún, aðra á beitu og flugu. Beitan gaf honum bestu veiðina.
Cezary hefur einnig verið að veiða mjög stóra fiska í Kleifarvatninu og hér fyrir neðan má sjá tvær flottar myndir af boltaurriðum úr vatninu frá því í síðustu viku. Einnig setti hann í tvo risafiska þar hann náði ekki í land enda hafa fiskarnir sjálfsagt verið nálægt 20 pundum. Á urriðaslóðum þar sem von er á sannköllum drekum duga engin vettlingatök og 10 punda taumur getur hæglega kubbast í sundur. Cezary er sennilega orðinn einn reynslumesti urriðaveiðimaðurinn í vötnum Veiðikortsins, og þegar hann var inntur eftir upplýsingum vildi hann ráðleggja mönnum að vera með sterka tauma og góðar stangir við veiðarnar þar sem hann hefur horft upp á menn missa marga fiska bara vegna þess að taumurinn er of veikur. 25 punda taumar ættu að klára málið! Cezary veiðir mest á spún, en stór Toby og Ribber gefið bestu veiðina. Annars mælir hann einnig með því að menn séu hreyfanlegir og prófi nýja staði til að finna fiskana.
Cezary með boltaurriða úr Kleifarvatni í síðustu viku. / Mynd Cezary
Flottir fiskar veiddir í Kleifarvatni í síðust viku. /Mynd Cezary
Hér fyrir neðan má sjá myndir sem Haukur sendi okkur frá veiðinni í aftakaveðri í gær – en þeir félagar í Bobbunum létu brjálað rok ekki aftra sér frá því að veiða urriða.
Brjálað veður! – Tekið í Kleifarvatni í gærkvöldi 12. maí. /Myndir Haukur B.
Fleiri myndir má sjá á myndaalbúmi þeirra www.123.is/bobbar
Þökkum kærlega fyrir innsendar fréttir og myndir og hvetjum veiðimenn endilega til senda okkur fleiri fréttir og upplýsingar á netfangið veidikortid@veidikortid.is
Með bestu kveðju,
Veiðikortið
0 Comments