URRIÐADANS Í ÖXARÁ
 
Hinn árlegi Urriðadans í Öxará verður laugardaginn næstkomandi 15. október en þá mun Jóhannes Sturlaugsson hjá rannsóknafyrirtækinu Laxfiskum fræða gesti Þjóðgarðsins á Þingvöllum um Þingvallaurriðann. Þetta verður í 14. skiptið í röð sem gangan er haldin.

 

Mynd frá Urriðadansi Jóhannesar.                    mynd: Cezary Fijalkowski.
 
Urriðagangan hefst klukkan  kl. 14.00 og fer fram á bökkum Öxarár. 
Gönguferðin hefst við bílastæðið þar sem Valhöll stóð. Síðan er gengið með ánni upp undir Drekkingarhyl þar sem risaurriðar og aðrir minni verða skoðaðir og fjallað um lífshætti þeirra. 
 
Gert er ráð fyrir því að kynningin taki um eina og hálfa klukkustund og fá gestir tækifæri til að sjá risaurriðann í návígi og fræðast um þennan stórhöfðingja Þingvallavatns sem á hverju hausti gengur upp Öxará til hrygningar.
 
Veðurstofa Íslands spáir fínu veðri þennan dag, léttskýjað, hiti og hægur vindur.
 
Með veiðikveðju,
Veiðikortið
 
 

0 Comments

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Fyrri frétt
Outdoor fun for Scouts
Næsta frétt
Vestmannsvatn enn í fullu fjöri