Mikið líf hefur verið í Úlfljótsvatni og hafa veiðimenn bæði verið að fá fallegar bleikjur og fína urriða. Það er ánægjulegt að heyra af góðri bleikjuveiði í Úlfljótsvatni núna, en oft fer bleikjuveiðin ekki á fullt í Úlfljótsvatni fyrr en um miðjan júní.
Benjamin Jochum fór ásamt Bjössa félaga sínum þangað í gær, 31. maí og urðu þeir varir við mikið af fiski. Þeir misstu nokkra en náðu að landa tveimur fallegum bleikjum. Önnur var um tvö pund og hin um 4 pund. Hér fyrir neðan er mynd af Bjössa með bleikjurnar góðu.
Bjössi með fallegar bleikjur úr Úlfljótsvatni 31. maí.
Einnig heyrðum við sögu frá veiðimanni í síðustu viku er hitti fyrir veiðimenn sem voru að stelast til að veiða á makríl, en þeir höfðu landað 4 urriðum. Við viljum ítreka það að stranglega bannað er að veiða á markíl í vatninu. Ekki skánaði þetta daginn eftir þar sem við fréttum við af öðrum veiðimanni sem fór í vatnið með hund sinn meðferðis. Sú veiðiferð endaði illa þar sem veiðimenn höfðu skilið eftir markíl á öngli. Hundurinn át makrílinn og öngullinn sat fastur í hundinum. Það endaði með uppskurði hjá dýralækni og ætti að verða okkur veiðimönnum til umhugsunum um að skila hvorki eftir okkur tauma, öngla eða annað rusl við vatnasvæðin.
Með veiðikveðju,
Veiðikortið
0 Comments