Það var mikið lif um helgina á Þingvöllum og margir sem fóru með börnin sín þangað og uppskáru vel. Adam Lirio Fannarssong og Tryggvi Gunnar Tryggvason eru meðal þeirra sem fóru í vatnið um helgina með börnin sín í blíðaskaparveðri. Það var mikið líf í kringum vötnin um helgina enda frábært veður og lífríkið komið á fullt. Það er frábært tími framundan fyrir vatnaveiðimenn.
Feðginin Tryggvi Gunnar Tryggvason og Ísabella Dís Tryggvadóttir fóru að veiða í Þingvallavatni og má segja að litla daman sé komin með veiðidelluna enda var erfitt að fá hana til að hætta! Þau voru við veiðar í drauma veðri. Það var nóg af fiski og þau tóku tvær bleikjur á Peacock. Veiðiuppeldið er byrjað hjá Tryggva og það verður klárlega ekki mikið mál að fá litlu dömmuna með í veiði næst. Hér fyrir neðan er mynd af Ísabellu Dís Tryggvadóttur með einn fiskinn.
Ísabella með fallega bleikju sem hún veiddi í sólinni á Þingvöllum um helgina.
Adam Lirió fór einnig í vatnið ásamt sinni dóttur að morgni 3. júlí og gefum við honum orðið.
0 Comments