Staðsetning:
Svínavatn er í Húnavatnshreppi í A- Húnavatnssýslu í nágrenni við Blönduós.
Leiðarlýsing og fjarlægð frá Reykjavík og næsta bæjarfélagi:
Frá Reykjavík eru um 240 km í vatnið. Farið er út af þjóðvegi nr. 1 við þjóðveg 724 og þaðan eru um 9 km. að vatninu.
Upplýsingar um vatnið.
Vatnið er 12km2 að stærð, í 130 m. hæð yfir sjávarmáli. Mesta dýpi er 30 metrar.
Veiðisvæðið:
Veiðisvæðið er fyrir landi Stóra-Búrfells og Reykja, ásamt almenningi vatnsins ef menn eru með bát.
Gisting:
Hægt er að kaupa gistingu á Hótel Húnavöllum í uppábúnum rúmum með morgunverði eða svefnpokapláss auk þess sem þar eru góð tjaldstæði. Símar: 453-5600 og 898 -4685
info@hotelhunavellir.is
Veiði:
Mest veiðist af urriða en einnig er þar töluvert af bleikju.
Daglegur viðitími:
Leyfilegt er að veiða frá kl. 07:00 til 24:00.
Tímabil:
Veiðitímabilið stendur yfir frá 1. júní til 31. ágúst.
Agn:
Fluga maðkur og spónn.
Besti viðitíminn:
Jöfn veiði er allan veiðitímann.
Reglur:
Veiðimenn eru beðnir um að skilja ekki eftir sig rusl. Veiðimenn skulu hafa Veiðikortið við höndina þegar veiðivörður vitjar veiðimanna. Akstur utanvega er stranglega bannaður.
Veiðivörður / umsjónarmaður á staðnum.
Grímur á Reykjum 892-4012 og Jón á Stóra-Búrfelli S: 868-3750/452-7133
{pgsimple id=32|caption=0|tsize=medium|tmax=20|imax=200|close=1}
{weather 4}
0 Comments