Stökkvandi fiskar, frábært veður og bullandi veiði. Meðalfellsvatn 20. apríl !
Það er búið að vera líf og fjör við Meðalfellsvatn í dag. Nokkrir fallegir sjóbirtingar hafa fengist í dag. Það eru góðar fréttir að menn séu að fá fallega sjóbirtinga á þessum tíma. Einnig hefur veiðst mikið af hoplaxi sem var að sjálfsögðu sleppt. Urriðinn hefur verið duglegur að taka.
Margir öflugir veiðimenn voru í vatninu og má þar nefna Sigga Má, Hjörleif í Veiðihorninu, Cezary og fleiri. Þeir fengu allir frábæra veiði og væna sjóbirtinga.
Cezary fékk mikið af hoplaxi, 6 sjóbirtinga um 5 pund og um 20 urriða á bilinu 1-3 pund. Sannkölluð veisla.
Siggi Már fékk þennan í dag!
Hjörleifur fékk þennan – 3 kíló!
Cezary fékk þennan! Flottur birtingur.
Verið að sleppa hoplaxi. Mynd Cezary
0 Comments