Veiðimenn hafa séð mikið af fiski síðustu daga í Hraunsfirði og Sléttuhlíðavatni. Fiskurinn í Hraunsfirði er þó ekki alltaf í tökustuði en það var hann í gær og var nóg um að vera. Við höfum frétt af fallegum bleikjum þaðan í gær alveg upp í 5 pund!
Tomasz Borek kíkti í Hraunfjörðinn í gærkvöldi og fékk hann 18 fiska. Hann fékk tvo sem voru 45 cm og aðrir voru smærri. Þeir tóku grimmt straumfluguna Mickey Finn. Það var mikið líf i hitanum og fiskar að vaka á fullu.
Hér er 45 cm sjóbirtingur sem Tomasz fékk í Hraunsfirði í gærkvöldi (9. júní) á straumfluguna Miceky Finn. mynd/Tomasz Borek
Sléttuhlíðarvatn er vatn sem gefur einhvern veginn alltaf vel. Valþór Söring Jónsson fór ásamt tveimur veiðifélögum sínum í Sléttuhlíðarvatnið 29. maí og veiddu þeir í saman 46 fiska á aðeins þremur tímum og veiddu þeir aðallega á spinner spúna. Þeir voru að sjálfsögðu ánægðir með þessa fínu veiði og kíktu aftur laugardaginn 31. júní og þá fengu þeir 41 fisk. Það er sem sagt mikið líf í Sléttuhlíðarvatni og má segja að vatnið henti mjög vel sem fjölskylduveiðivatn þar sem nóg er um að vera í veiðinni!
Hér má sjá aflann hjá þeim félögum úr Sléttuhlíðarvatni frá 29. maí. mynd/Valþór
Við þökkum fyrir fréttirnar og hvetjum veiðimenn til að senda okkur fréttir og aflatölur úr fleiri vötnum!
Með veiðikveðju,
Veiðikortið
0 Comments