Félagarnir Elías Pétur Þórarinsson og Óskar Bjarnason skelltu sér á Skagaheiðina um síðustu helgi. Þar iðaði allt af lífi, bæði nóg af fiskum og flugum. Þeir félagarnir fengu marga fiska í blíðviðrinu enda óhætt að segja að Skagaheiðin sé paradís á jörð í góðu veðri.
Hér fyrir neðan koma nokkrar myndir sem við fengum frá Elíasi Pétri. Við vekjum athygli veiðimanna sem vilja skella sér norðu á heiðina að þar er takmarkaður stangarfjöldi og því nauðsynlegt að kanna stöðu mála á Hvalnesi áður en lagt er af stað. Einnig er hægt að leigja þar veiðikofa, en tveir kofar eru við Ölvesvatn.
Elías Pétur með fallegan urriða á Skagaheiði.
Óskar Bjarnason með eina boltableikju.
Þegar vatnið kraumar af fiski er gott að grípa minningar á GoPro vél.
Verið að sleppa fallegri bleikju.
Eins og sjá má var pínu fluga á heiðinni. Þetta er ein af ástæðunum fyrir því að fiskur dafnar vel á heiðinni
og hefur nóg æti.
Við þökkum Elíasi Pétri kærlega fyrir myndirnar og hvetjum veiðimenn til að njóta sumarsins og skella sér í vötnin í blíðunni.
Með veiðikveðju,
Veiðikortið
0 Comments