Þar sem flest tjaldstæði eru að verða þétt setin fyrir Verslunarmannahelgina er rétt að benda á að ábúendur á Stórulág við vatnið Þveit var að opna nýtt tjaldsvæði fyrir rúmri viku.
Veiðimenn sem verða á faraldsfæti og ætla sér austur á firði geta kynnt sér þetta fína tjaldstæði þar sem má finna hreinlætisaðstöðu og rafmagn. Það er alveg tilvalið að stoppa við Þveit og gista á tjaldstæði þeirra hjóna Jóhönnu og Sigurðar á Stórulág og njóta þess að veiða í Þveit á leiðinni austur. Nánari upplýsingar um tjaldsstæðið má finna á Facebook-síðu þeirra
Með veiðikveðju og góða helgi!
Veiðikortið