Það hefur verið mjög góð veiði síðustu daga á Skagaheiði þrátt fyrir að allt lífríkið virðist vera seinna á ferðinni. Það má í raun segja að sumarið hafi komið 2-3 vikum seinna en vant er. Þessa stundina eru fullt á svæðinu, en takmörkun er á stangarfjölda á vatnasvæðinu þannig að þeir sem ætla sér að fara norður á næstu dögum er bent á að hafa samband við staðarhaldara á Hvalnesi fyrst í síma 453-6520.
Ævar Ágústsson fór ásamst félögum sínum um miðja vikuna og veiddu þeir frá hádegi á miðvikudag og allan fimmtudaginn. Þeir veiddum saman um 45 fiska og kemur fiskurinn vel undan vetri í góðum holdum. Ævar hefur veitt á á sama tíma á þessum svæði í mörg ár og hann sagðist varla muna eftir því að á þessum tíma væri eins vetrarlegt um að lítast og núna, enda mátti sjá stóra snjóskafla skaga út í sum vötnin.
Fallegir fiskar. Brot af aflanum hjá Ævari úr Grunnutjörn.
Róbert Daníel Jónsson og veiðifélagi, fóru til veiða á miðvikudaginn 12. júní og upplifðu næturveiðiævintýri þar. Þeir veiddu frá kl. 24.00 til fimm um morguninn. Þeir veiddu í Grunnutjörn, Ölvesvatni og Fossvatni.
Hér fyrir neðan má sjá skemmtilega myndaseríu sem við fengum senda frá honum Róbert. Á myndunum má klárlega sjá hversu skemmtileg upplifun er að veiða á heiðinni í fallegu veðri.
Fallegir fiskar á heiðinni!
0 Comments