Vötnin loka eitt af öðru
Nú er farið að styttast í annan endann á veiðitímabilinu í ár og aðeins fá vatnasvæði enn opin fyrir veiði. Þá veiðimenn sem enn klæjar í puttana að fara að veiða geta skoðað HÉR lista yfir opnunartíma vatnanna.
Nú er farið að styttast í annan endann á veiðitímabilinu í ár og aðeins fá vatnasvæði enn opin fyrir veiði. Þá veiðimenn sem enn klæjar í puttana að fara að veiða geta skoðað HÉR lista yfir opnunartíma vatnanna.
Sléttuhlíðarvatn er eitt af þessum vötnum sem gefur jafnan mjög góða veiði enda mikill fiskur í vatninu. Það er staðsett á milli Hofsós og Siglufjarðar.
Sigmundur Elvar Rúnarsson 8 ára fór þangað ásamt föður sínum um helgina og fékk þar sinn fyrsta fiski eftir stutt stopp og veiðibakterían hjá þeim feðgum að lifna við.
Við hvetjum ferðalanga til að kíkja í vatnið þó ekki sé nema stutt stopp þegar verið er að ferðast um landið. Mikið er af bæði bleikju og urriða í vatninu og klárlega eitt af skemmtilegri veiðivötnum í Veiðikortinu fyrir fjölskyldur.
Fín veiði hefur verið í Úljótsvatni í sumar og margar vænar bleikjur komið á land sem og fallegir urriðar.
Hér er Guðjón Þór Þórarinsson með eina rígvæna bleikju sem vóg rúmlega 3 kg og var 60 cm sem hann veiddi í gær. Það er óhætt að segja að hún sé nánast hnöttótt! Virkilega fallegur fiskur.
Það er búið að vera mjög góð veiði í Hraunsfirði í sumar. Í vatninu er aðallega sjóbleikja og flakkar hún gjarnan um vatnið í stórum torfum. Margir veiðimenn hafa fengið fína veiði þar í sumar en auðvitað er bleikjan ekki alltaf í kastfæri og því ekki allir sem hafa fengið góða veiði.
SVFR og Veiðikortið bjóða veiðifólki og fjölskyldum þeirra til Þjóðhátíðar við gamla Elliðavatnsbæinn milli kl 13 og 15 þann 17. júní
Einn besti tíminn í vatnaveiðinni er að nálgast. Þegar skordýralíf fer á fullt og gróður færist í fullan blóma þá fer silungur í vötnum landsins á mikla hreyfingu og færist nær landi þar sem jafnan má finna mestu fæðuna.
Nú þegar hefur tímabilið gengið vel það sem af er. Urriðaveiðin í Þingvallavatni hefur gengið vel og margir rígvænir fiska allt upp í 20 pundin hafa komið á land. Einnig voru veiðimenn að fá fallega urriða í Úlfljótsvatni og Kleifarvatni.
Þeir sem panta kortið á netinu mega búast við því að afhending geti tekið frá 5-10 dögum eins og staðan er í dag en afhendingartími virðist vera nokkuð mismunandi milli hverfa.
Hægt er að sækja kortið til okkar á Rafstöðvarveg 14, en þá þarf að láta vita af því um leið og kortin eru pöntun þannig að þau fari ekki í póst.
Með kveðju,
Veiðikortið
Eiður Kristjánsson fluguhnýtari og veiðimaður hefur verið iðinn við að veiða í vötnunum í nágrenni borgarinnar. Hann er öflugur fluguhnýtari og hefur hér tekið saman leiðbeingar um hvernig má hnýta fjórar öflugar flugur sem virkar mjög vel í Elliðavatni sem og auðvitað víðar. Elliðavatn opnar fyrir veiðimönnum á morgun sumardaginn fyrsta þannig að það er tilvalið að nýta síðasta kvöld vetrar til að setjast við hnýtingar! Við þökkum Eiði fyrir þetta.
Veiðisumarið hefst í Elliðavatni sumardaginn fyrsta
Elliðavatn sem er á mörkum Reykjavíkur og Kópavogs er eitt vinsælasta silungsveiðivatn á Íslandi. Þangað leggja leið sína þúsundir veiðimanna á öllum aldri ár hvert. Síðustu sumur hafa verið góð og það er í raun magnað að hægt sé að komast í slíkar veiðilendur steinsnar frá ys og þys borgarinnar.
Á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 23. apríl hefst veiðin í Elliðavatni enn eitt árið. Vatnið breiðir út faðm sinn og tekur vel á móti yngri veiðimönnum sem hinum eldri. En Elliðavatn getur líka verið krefjandi veiðivatn og er oft kallað „háskóli fluguveiðimannsins“. Elliðavatn er oft gjöfult, ekki síst framan af veiðitímabilinu og það er enngin ástæða til annars en að láta sig hlakka til þess að njóta útiverunnar við vatnið.
Veiðikortið – sem er stoltur leigutaki og umsjónaraðili Elliðavatns – býður veiðimenn á öllum aldri hjartanlega velkoma til veiða í Elliðavatni í sumar og hvetur til þess að menn opni veiðisumarið í vatninu og haldi þannig með viðeigandi hætti upp á sumarkomuna; í Elliðavatni á sumardaginn fyrsta!
Veiðikortið fæst um allt land, á bensínstöðvum, í veiðibúðum auk þess sem hægt er að panta það hér á heimasíðunni veidikortid.is og fá það sent heim.
Gagnlegt er að skoða bæklinginn sem hann Geir Thorsteinsson gerði um Elliðavatnið: << SMELLA HÉR >>
Við vorum að setja inn á vefinn vefútgáfu af fylgiriti Veiðikortsins.
Nú er um að gera að fara að skipuleggja veiðiferðir sumarsins.
Með veiðikveðju,
Veiðikortið