10. ágú. 2011
Kleifarvatn – ekki bara bleikjuveiði núna!
Það er greinilega mjög misjafn hvaða tegundir menn eru að fá eftir því hvaða agn er notað sem og eftir því hvar í vatninu menn eru að veiða. Þann 1. ágúst fékk Halldór glæsilega bleikjuveiði þar sem stærsta bleikjan var um 5 pund.
Að kvöldi 8. ágúst fór Steingrímur Valgarðsson upp í Kleifarvatn og fékk 4 væna urriða, en stærri fiskarnir vógu um 6-7 pund og þeir minni 2-3 pund. Hér fyrir neðan er mynd af fiskunum. Fiskana fékk hann á maðk sem hann dró eftir botninum. Hann nefndi að það væri mjög góð veiði í vatninu núna og að þetta væri afar góður matfiskur.
Urriðarnir sem Steingrímur Valgarðsson fékk í Kleifarvatni 8. ágúst sl.
Einnig látum við fylgja mynd sem Steingrímur sendi okkur fyrr í sumar.
Við þökkum honum fyrir myndina og hvetjum veiðimenn til að senda okkur fleiri myndir á netfangið veidikortid@veidikortid.is
Mk,
Veiðikortið
0 Comments